Blogg blogg blogg...
Úff hvað það er ekki sumarlegt að blogga, úff jæja here goes, hef fátt að segja annað en ég er að fara í frí til Italy með Tinz, munum vera þar í góðu yfirlæti frá 19.júlí til um 2.ágúst, á eftir að vera ógeeeeðslega gaman, hlakka bara til, hugsið ykkur, við munum sjá sólina. Annars þá er rigning, mun vera rigning áfram, hefur verið rigning, líklegast eitt mesta bömmát sumar síðustu ára, ekkert nema ský og rigning alla daga alltaf og í fyrsta skiptið í langan tíma hef ég lítinn áhuga á að vera að ferðast innanlands þar sem ekki sést til sólu og mér leiðist að tjalda í pollum. Mun reyna samt á lukkuna með að fara inn í Þórsmörk um helgina, reyndar er Syndarflóði II spáð fyrir svæðið vestan við jökul og 3/4 Ísland verður á floti þessa helgina, en það má vona það besta og pakka bara spilum með og nóg af kakói, hef trú um að þetta verði barasta áthelgi en ekki gönguhelgi, en það verður gaman ef annað kemur í ljós. Þessi vika í vinnu hefur verið framlegð mín dottið niður svo svakalega að ekki er tól til að greina það, hvernig er það, væri ekki mál að fá frí fyrir frí, ég meina það eru svo margir sem eru að fara í frí og gera fátt vitrænt síðustu dagana fyrir frí, væri ekki bara eins gott að senda það pakk bara strax í frí?? eða myndi þetta verða svona keðjuverkandi og svo allt í einu er maður kominn í frí alltaf þar sem maður er alltaf á leiðinni í frí og gerir því aldrei neitt..hmmm oh well þetta er pæling.
Annars þá hérna eins síða http://www.myspace.com/jeffwhoband þetta síðann þeirra Jeff Who? kumpána, þarna má finna myndir og ýmsan fróðleik um þá gutta, meðal annars má hlusta á lögin þeirra og eitt af þeim "Stop Wasting My Time" er í nýrri útgáfu, með smá rapp kafla, sem er soldið skondið.
Fór í bíó í gær, sá Superman Returns, mildly dissapointing myndi ég segja, ég eins og aðrir supermans aðdáendur vonuðumst til aðeins meiri actions, myndin fín, vantaði bara aðeins meiri læti.
En nóg um það, en sem sé, ég og Tinz munum í miðri næstu viku fara á stað líkum þessum..

Síðan skella okkur í smá ferð á einum svona

Og drekka nóg af þessum...

En allaveganna...farinn að pakka, sjáumst sótsvört...vona að þið sjáið til sólar á meðan ég er úti...