Í gær varð draumurinn að veruleika, um klukkan 21:30 að dönskum tíma steig á svið sú hljómsveit sem ég og mínir félagar hlustuðum hvað mest á sem unglingar og gerum reyndar enn í dag. Metallica menn stigu fram með tilheyrandi eldglæðingum og sprengjuhvellum og 40 þúsund trylltir áhorfendur gjörsamlega sprungu af spenningi. Í góða 2 tíma hoppaði maður og öskraði eins og stjórnlaus bavíani á fengitíma og hvert sem litið var mátti sjá fólk hegða sér eins. Ace fan #1 náði ásamt nokkrum úr genginu að troða sér alveg fremst og sjá átrúnaðargoðin í svona 15m fjarlægð en ég og kritz komumst ekki alveg svona framarlega. Stemmningin var æðisleg, svitinn, lyktin og hávaðinn..þetta var allt geggjað. Þeir sem eru svo heppnir að eiga miða á tónleikana 4.júlí heima verða sko ekki fyrir vonbrigðum.
Allaveganna þá sit ég hérna hás, með bólgna hljóðhimnu, þreyttar lappor en með feitt bros og hugsa til þess að ég sá METALLICA Í GÆR BEIBÍ...
