Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

fimmtudagur, september 11, 2003

Eirðaleysi.15..........ég held ég hafi rétt í þessu klárað yfirferð yfir allt internetið, og það aðeins á 2 tímum, geri aðrir betur, settist bara hérna fyrir framan mumbling machine í morgun klukkan 8, var með samloku og djús með mér og svo byrjaði ég og ég held barasta að ég hafi klárað netið, ekkert meira til að skoða, fréttir, grín, blogg, íþróttir, tækni, vélar, matur, vín, afþreying og allt annað, barasta búinn með það. Þetta er alveg dásamleg tilfinning að vera búinn með þetta, geta bara slökkt á internetinu og farið að gera eitthvað að viti svona eins og menn gerðu fyrir 1990 eða þar um bil. Nú þarf ég að komast að því hvað fólk gerði eiginlega fólk áður en þessi óþrjótandi upplýsingakista kom upp á sjónarsviðið, hvernig gat fólk komið sér í gang í vinnunni án þess að kíkja aðeins á mbl.is, tilveruna,helstu bloggin og lesa póstinn sinn, ég get ekki ímyndað mér það, hlýtur að hafa verið erfitt líf....eða hvað? Ég man þá daga sem sjónvarpið var ekki á fimmtudögum og ég lifði það af, ég man líka þegar það var bara ein sjónvarpsstöð, bylgjan var aðalútvarpsstöðin og vikan var aðalslúðurblað bæjarins. Maður lifði þetta allt af, no problemó. En í dag, ef netið klikkar, þó svo ekki í nema 5 mínútur eða svo, þá fer allt til fjandans því maður gæti verið að missa af einhverju, voru einhverjir að senda manni meil, hvað með fréttir, eitthvað að gerast í miðausturlöndum og so on. Þess vegna er ég sáttur við að hafa barað klárað internetið, búinn með það, og get farið að lifa því einfalda lífi sem fólk fyrir 1990 hlýtur að hafa lifað..

Farinn að lesa bók!

þriðjudagur, september 09, 2003

Jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee þriðjudagur....nú afhverju segi ég jeeeeeeeeeeeee þriðjudagur, nú bara vegna þess að ég get það því ég RÆÐ, en svona til að útskýra að þá eru í dag bara 2 vikur þar til að ég ásamt föruneyti förum í mini heimsreisu, verður byrjað á að skella sér til lu Paris og þar verður feitur fákur leigður sem mun taka okkur alla leið yfir landamæri Þýskalands til Munchen. Það verður bjór smakkaður og lederhoser skoðaðar og í lokin verður brunað svo til lu france aftur og skoðað gaura og flogið síðan heim, sem sé verður brill ferð....kaffitími...

föstudagur, september 05, 2003

Jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee...flöskudagur, flögudagur, bjórdagur, pizzadagur, gleðidagur, dansdagur, sófadagur, þetta og margt annað er dagurinn í dag kallaður en föstudagur (aka lu friday) er minn þjóðhátíðardagur, gamlársdagur, afmælisdagur og hvað þeir nú heita allir þessir frídagar/gleðidagar. Já það er nefninlega á hverjum föstudegi sem maður finnur fyrir einhverskonar tilhlökkun, hvað á að gera í kvöld, hverjir eru lausir í hvað, verður djammað þessa helgina, verður tekin sófaogpizzuognammiogvideóhelgi, ef það verður djammað hvert verður farið, á að fara út úr bænum og þessháttar spurningar flæða um heilahvelin í leit að svörum og á meðan fyllist líkaminn af hinum ýmsustum vellíðunarhormónum og lífið fær tilgang.
Í mínu tilfelli þá er helgin plönuð út í eitt, startar með léttum bumbuæfingum á einni af mörgum píntingarstöðum borgarinnar, þar næst verður nælt sér í eitt stykki pizzu með pep,svepp,lauk, síðan mun kvöldinu vera eitt í væga bjórdrykkju ásamt tilheyrandi videoglápi með félögunum. Á morgun mun svo vera haldið austur fyrir fjall í leit að sannleikanum um að bjór sé betri í Þórsmörk, má vænta niðurstöðu úr því máli eftir helgi, en já that´s about my plan. Ef þetta er ekki gott plan þá veit ég sko ekki hvað er gott plan.....

Allaveganna farið varlega um gleðinnar dyr og við sjáumst öll hress á lu montag...

Later skaters...

By the way vefsíða dagsins og vikunnar er www.boring.com líklegasta eins og nafnið gefur til kynna að þá má ætla að þetta sé eitt það leiðinlegasta fyrirtæki sem um getur...sjáið bara myndina af forstjóranum...anywho..farinn!!

fimmtudagur, september 04, 2003

Það eru 3 dagar í að paysitforward starti aftur að skrifa, þá mun myrkrið ekki vera svona dimmt og rigning ekki svona blaut, eru þið ekki spennt?
Rigning, rigning og enn meiri rigning, nú er akkúrat vika síðan ég koma heim frá fyrirheitna landinu og enn er rigning og rok, þetta er ekki heilbrigt, það hlýtur að vera takmörk á því hversu mikið getur rignt í einu á sama skerið. Félagarnir sem flúðu land og sitja nú í makindum sínum í 20 plús gráðum með öl glas og pretzels og hlæja að okkur hinum sem enn höfum ekki fattað á því að flytja suður á bóginn, þó það væri nú ekki nema yfir veturinn. Eins ljúft og Ísland er svona oftast hvað flest varðar, þá er það leiðinlegt veðurlega, reyndar held ég að þökk sé gróðurhúsaáhrifum og ozonþynningu að þá hefur veðrið hér á norðurhjara veraldar batnað síðustu árin, þetta gæti nú líka bara verið svona lökkí breik, en sumarið í ár var brill á Íslandi, en það er þessi tími sem fylgir eftir sumrinu alveg fram að jólum sem sýgur feitann dverg.
Hvað líf mitt viðkemur þá hefur fátt gerst eftir heimkomuna, maður hefur einungins dólað sér við tölvuvinnslu, æfingar og sjónvarpsgláp, en það stendur nú til bóta á komandi dögum, munu menn reyna að bregða undir sig betri fætinum og brosa breytt því helgin nálgast.

Nenni ekki að mumbla meir...

þriðjudagur, september 02, 2003

Úff það er hálfur mánuður síðan the mumbling machine hefur fengið að njóta sín, hverskonar meðhöndlun er það á greyinu??!!. Allaveganna, það er búið að ræsa hana á ný í von með að hún fái að malla um ókomna framtíð. Og hvað hafa menn svo verið að gera síðustu vikurnar, jú SommerUrlaub er málið, það var skellt sér til Espania með öðrum hetjum og smakkað og spænskum servesum, dansað við þýska lederhosen tónlist og svamlað með fiskunum. Það var sannkölluð nautn að vera í 33+ stiga hita, í stuttbuxum og með strandarhatt, finna heita suðræna vinda leika um sig og þjóra sangríu. Afhverju er maður á þessu skeri hérna, þurfandi að klæða sig í 5 flíspeysur og og 7 sokka á veturna til að geta skafað af gegnfrosnum bílnum til þess eins að fara í vinnuna svo maður hafi eitthvað að gera annað en að hugsa þungar hugsanir á meðan mesta skammdegið líður yfir. Afhverju er maður ekki bara eins og farfuglarnir og fer suður á veturnar, ég skil það ekki, og í hvert skipti sem ég fer svona á suðlægar slóðir þá skil ég það minna....