Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

föstudagur, desember 03, 2004

Hitt og þetta...
Jæja enn ein helgin framundan og aldrei þessu vant ekkert stórt held ég á dagskránni. Fólk virðist vera farið að einblína á jólaundirbúning og verkefnum tengdum þessum árstíma, eins og próf og þessháttar.
Í gærkvöldi var Kastljós í gangi og var umræðan aðallega um Freysa á X-inu, þarna var mættur Freysi og einhver formaður æskulýðs eitthvað í Hafnarfirði og sá maður á kennarastutterma skyrtunni hans að hann var mættur til þess að valta yfir þessa umræður og sýna heiminum hversu rétt hann hefði fyrir sér og hversu mikill djöfull Freysi væri. Hann byrjaði að predíka og tala og reyndi að láta skína hversu góður maður hann væri samanborið við Freysa. Nema hvað hann æskulýðsfulltrúinn náði að missa það út úr sér atriði eins og að Jólasveinninn er ekki til og ég veit ekki hvað og hvað og þegar uppi var staðið þá var hann eiginlega farinn að taka hlutverk vonda kallsins í þættinum og minnti mig óneitanlega á kall sem ég sá í bíómynd einu sinni og sagði að Rokk væri tónlist djöfulsins og vildi banna unglingum í smábæ einum í ameríkunni að hlusta á þessa djöfla tónlist. En allaveganna úrslit gærkvöldsins Freysi 1 stig Æskulýðsfulltrúarstjórinn 0 stig. Vill samt taka það fram að mér persónulega finnst þátturinn leiðinlegur og illa gerður en enga síður, þá kom hann Freysi bara ágætlega fram þarna í gærkvöldi.
Hvað er svo málið með þessa blessuðu tónleika og umræðuna um þá, hverju máli skiptir það hvað hver fékk í laun og síðan hvernær hefur það ekki verið vitað að Stjáni Jó sé nöttari. Úff íslensk blaðamennska er svo léleg stundum og þær fréttir sem þær sigta út sem aðalfréttir svo innihaldslitlar að maður gapir. Er ekki eina málið að þessir tónleikar skiluðu haug af pening til barnanna og er það ekki mál skipuleggjanda tónleikanna hvað þeir eru tilbúnir að borga tónlistarfólkinu og svo öll þessi umræða um að Stjáni Jó hafi sagt ósatt og bla bla bla, hverjum er ekki sama segji ég nú barasta. Hann er reyndar brilleraði í sjónvarpinu um daginn og gjörsamlega hegðaði sér eins og 13 ára unglingur, sem var skondið og enn skemmtilegra að sjá hversu lengi við getum velt okkur upp úr þeim "fréttunum" hversu illa hann kom fram þarna.
Jæja verkefni helgarinnar fyrir ykkur öll, klára jólakortin og vera búin að lista upp öll gjafakaup sem þið eigið eftir og hvað það á að vera...ekki erfitt það, ef hugmyndir vantar sendið mér póst og ég græja haug af hugmyndum fyrir ykkur...

Farinn..

miðvikudagur, desember 01, 2004

23 dagar til jóla...
Nú er formlega jólamánuðurinn byrjaður og hefst nú eintóm gleði í mánuð og rúmlega það. Versla gjafir, skrifa vinum jólakort (þeim sem maður hittir ekki yfir hátíðina), baka smákökur, borða smákökur, elda dýrindis kræsingar, spila spil með góðum vinum, hlusta á Bing Crosby, drekka jóladrykki, borða úr súkkulaðidagatalinu og svona mætti lengi telja. Mörgum finnst þetta mest stressandi tími ársins, finna fyrir þörf að gera allt miklu flóknara og erfiðara en það þarf í raun og veru að vera og ég segi bara gerðu það sem þú vilt gera og ekki láta einhverjar heimskulegar kenndir taka af þér völdin og stýra því hvort þessi mánuður verði verkur í rass eða eintóm gleði. Gott dæmi um verk í rass vinnu er að skrifa jólakortin, eða það finnst flestum því allt of margir halda að þeir verði að skrifa jólakort til allra sem þeir hafa einhverntímann séð eða hitt. Persónulega finnst mér það rugl í dag og hef minnkað listann úr að vera svona 40 kort í að vera þetta rúmlega 10 eða svo. Góð regla held ég að sé eftirfarandi hvað þetta varðar, Ekki senda þeim sem þú munt hitta oftar en 5 sinnum í mánuðinum eða talar við oftar en 10 sinnum í mánuði í síma(email). Ekki senda fólki sem sendir þér aldrei jólakort og er aldrei í sambandi við þig. Þeir sem þú sérð nánast á hverjum degi, láttu tæknina hjálpa þér í því og skrifaðu bara jólatölvupóst til þeirra, mun sneggra og fólk er alveg jafn hamingjusamt með það. Ég held þetta muni minnka marga listana um talsvert og því eigiði því meiri tíma í að gera þau kort sem þið skrifuð persónulegri og skemmtilegri. Úff ég held ég geti farið að sækja um vinnu hjá Völu Matt með þessum fróðleiksmolum mínum.
Jæja nóg í bili, fleiri fróðleiksmolar fljótlega...