Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

mánudagur, febrúar 28, 2005

Nei sæl frú..herra..frú..
Í dag er ég búinn að vera hérna einn í glerhúsinu fína (millibyggingin upp í vinnu) þar sem móttakan er og í dag vildi svo heppilega til að allir þeir sem eiga að vera í móttökunni voru frá vegna veikinda eða í fríi. Þar sem ég er nú auðvitað hinn mesti snillingur þá tók ég nú því það að mér að vera símadaman, móttökumanneskjan, tölvarinn, bókari og einnig að vinna í innkaupum. Nú þetta gekk bara svona líka vel alveg fram yfir hádegi en þá fór nú að vera heldur mikið að gera og oftar en ekki voru 2 símar á flugi, tær og fingur að slá á lyklaborðið og ég aðeins farinn að svitna. Akkúrat þegar hvað mest er í gangi, kemur inn manneskja og ég í snarhasti segi.."Góðan dag, hvað má gera fyrir frúnna..." manneskjan lítur á mig og segir með djúpri röddu "Við hvern ert þú að tala væni minn.." ...shit þetta var þá karlmaður...eldrauður í framan segi ég.."afsakið en ég var í símanum..hvernig get ég aðstoðað.." sem betur fer sætti kallinn sig við þetta bull mitt og sagði mér erindið sitt hingað. Hvað meinar maðurinn með að líta út eins og kelling, honestly, þessi gaur var jafnvel með man boobies for crying out loud...úff en héðan í frá munu öll mín svörun fara fram á kynlausu nótunum...

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

Í gær náðum við UberTinz að skella á seinni umferð af málningu, gargandi brill og íbúðin hefur gjörsamlega hoppað upp um milljón kall bara við það...og við gátum setið sátt fyrir framan tellan það sem eftir lifði kvölds vitandi það að mesta málningavinnan er búin..jee...nú er bara að klára eldhúsið og baðherbergið og þá er er hún búin að hoppa upp um svona 2 millur :-)..

Hvað er málið með gamalt fólk og lykt, svona grínlaust. Nú var búið að fara 2 umferðir yfir öll loft og 1 umferð yfir flesta veggina í gær, en þegar ég mætti upp í íbúð þá var ENN þessi old people lykt sem fylgir flestu gömlu fólki, grínlaust..hvað er með þessa lykt og afhverju lifir hún FOREVER í íbúðinni minni, var gamla konan að maka sjálfri sér á alla veggi og öll gólf??..alveg skrítið dæmi...

Minni svo alla á að Jeff Who? eru að spila á Gauknum í kvöld, mæting kl 21:45...

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Óskast keypt...
Óska eftir að kaupa peningatré, má vera þúsundkallatré en er fyrst og fremst að leita eftir góðu, lítt notuðu fimmþúsundkallatréi sem gefur vel af sér næstu 30 - 40 árin. Einnig selst gott lítt notað fótanuddtæki á sama stað gegn vægu verði.

Náði að mála haug í gærkvöldi, ég og UberTinz gjörsamlega vorum á ljóshraða að pensla pleisið, stofan, svefnherbergið, gangur..allt komið með eina umferð..spurning að henda á restina í kvöld...og þá jafnvel stefnt á bjór + pizzu á lördag...hmmm jamm jamm..

Farinn á Café Bleu...

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Týnda litla Ísland...
Til allra áhugasamra. Auglýst er eftir litlu landi sem svarar nafninu Ísland en ekki hefur sést til þess síðan síðla laugardagskvölds en þá sást það hverfa út í þokuna austan Grænlands í fylgd vafasamra færeyskra eyja. Foreldrar Íslands Herra Eldur og Frú Ís segja landið vera lítið, hafa verið klætt hvítum jöklum, miklum fossum og stórum öræfum. Landið er lítið eins og áður hefur komið fram en það telur sig yfirleitt vera risafengið og stórvægið á heimsvísu og því biðjum við alla sem verða varir við öfgakennda hegðun eins og óraunhæfa sykurnotkun, útúrkú skuldasöfnun og overthetop mikilmennskubrjálæði að hafa samband við yfirvöld....

Þið eruð að grínast með þessa þoku sem búin að er vera hér á sv-horninu síðustu daga, ef þetta er ekki veður sem er beint úr einhverjum reifaranum þá veit ég sko ekki hvað. Þoka, logn, molla og furðulega mikil þögn...ég er að segja það...eitthvað á eftir að gerast...eitthvað...stóórskrítið...

Farinn að betla beikon..

mánudagur, febrúar 21, 2005

Why??!!...why you do this to me...why?!
Afhverju finna sumir karlmenn þá löngun djúpt innan í sér að nudda axlirnar á öðrum karlmönnum...grínlaust...afhverju? Bara hér innandyra eru þónokkrir karlmenn sem finna fyrir þeirri löngun þegar þeir tala við aðra karlmenn að standa hjá þeim, helst fyrir aftan þá og grípa þétt um axlirnar og nudda á meðan þeir tala...halló er ekki allt í lagi, til hvers, er þetta einhver pervertísk löngun eða er þetta bara til þess eins að athuga...vá já, hann ER með meiri axlarvöðva en ég. Ef einhver veit svarið við þessu þá vinsamlegast látið mig vita því it is grossing me out þessi káfiþörf karlmanna á öðrum karlmönnum.
Viiiitiði hvað, kallinn, ég, er bara orðinn fótboltastjarna, strákurinn vippaði sér í betri skónna, íþróttaskónna og fór og keppti í fótbolta á laugardagskvöldið. Heitur á línunni, beið ég óþolinmóður að spretta inn á völlinn og sýna keppendum sem og áhorfendum hvernig á að spila fótbolta. Loksins var ég kallaður inn á og spratt ég eins og byssubrandur þvert yfir völlinn..."jó binni þú átt að spila hægri bakvörð"..."OK!"...what the hell er hægri bakvörður?..eins og villt mús í völundarhúsi hljóp ég um allan völlinn í leit að þessari stöðu...hægri bakvörður..."nei binni ekki centre...hægri baaakvörð"..."já OK ekkert mál!"...er eitthvað skilti á þessum blessaða velli sem segir hvar þessi hægri bakvarðarreitur er??...eftir mikið hlaup fram og til baka fann ég loksins þennan reit...eiginlega var ég nelgdur niður á hann af samspilurum..."HÉRNA BINNI..HÉR ÁTTU AÐ VERA".."OK!" Jæja ok, staðan fundin og þá var bara að láta hina finna fyrir því hvernig maður spilar fótbolta...."Allir fraaaaammmm" var öskrað og þá var sko boootnað...Mach 1..Mach 2...Maaach 3...djöööfull hljóp ég hratt...nei andsk..allir komnir á hinn vallarhelminginn...snúa við...oooog botna..Mach 1..Mach 2...nei hvuur andsk þeir eru búnir að snúa við aftur..eftir góðar 30 mín af þessu var flautað til hálfleiks. Lappir..operational..hendur operational, lungu..red alert red alert...mætti halda að ég hefði verið búinn að reykja 10 pakka á dag í 15 ár, lungun gjörsamlega að brenna upp...sárt..svooo sárt. "FLAAAAAUUUT" WHAT..strax seinni hálfleikur...úff o jæja... Segja má að seinni hálfeikur hafi verið mjög svipaður þeim fyrri..fyrir utan við meiri þreytu og var maður farinn að öskra "KEEYÐA DRÁKAR...KEEEYÐA..." . Þvoglumæltur, þreyttur, lungun gufuð upp skreið ég inn í búningsherbergi...aldrei...nei aldrei aftur mun ég spila þessa íþrótt...stúpid boltaíþrótt...

Annars var helgin fín, náði að mála slatta, pússa slatta og vera bara yfir höfuð súper duglegur...

Farinn að kveðja kritz...

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Kaldur febrúarmorgun...
HVAÐ ER MÁLIÐ??!! Er ekki allt í lagi með þetta veður, ekki nóg með það að maður vaknaði við að það bókstaflega snjóaði yfir mann í morgun upp í rúmi, gleymdi að loka glugganum alveg í nótt þegar ég fór að sofa og því var barasta blindbylur inn í herbergi, heldur er svona 10 stiga hiti hérna á skrifstofunni í dag. Þessir snillingar sem hanna dyr sem hafa skynjara og opnast og lokast sjálfkrafa gerðu ekki ráð fyrir að þær færu til Íslands. Það eru mánuðir síðan þessi dyr var sett upp og enn þann dag í dag er hún gjörsamlega að flippa út, opnast og lokast þó svo enginn sé nálægt og maður situr hér í maxgalla með lúffur og þjórar kaffi eins og versti sjóari til að halda sér heitum. Ég er ekki sáttur í dag, er ekki hægt að senda þetta veður til miðausturlanda, leyfa þeim aðeins að kæla sig niður, eða bara til færeyja, ekki hingað.

En allaveganna, kaldar kveðjur barasta frá mér til ykkar á þessum kalda degi...

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Busy busy busy...
Já maður hefur heldur betur verið busy þessa daganna, erfitt að blanda saman vinnu við íbúð, sinna vinum og fjölskyldu..tekur allt svo svakalegan tíma. En hvað hefur breyst síðan síðast? Jú kallinn er búinn að rífa niður eldhús innréttinguna, búinn að rífa niður 1.5 vegg inn á baðherbergi, búinn að spasla allt og pússa flest og er núna bara að spá í hvernig litur á að vera á veggjunum...held ég skelli einhverjum hvítum blæ á allt nema kannski svefnherbergið, var kannski að spá í gráleitan blæ þar..hvernig hljómar það?
Annars var farið núna um helgina á smá trallerí með vinnunni, það var svokallað galakvöld og varð ég því að klippa af mér drullugallann og grafa upp skyrtu og bindi, ekki alveg það sem ég var að nenna að fara að gera, en lét mig hafa það og svo á endanum þá varð kvöldið bara svona líkast til skemmtilegt, ég klæddur upp eins og herramaður (gerist 1 - 4 sinnum á ári) og Tinna eins og úr tískublaði, vorum mega flott. Matur á Skólabrú, skemmtiatriði með Erni Árna, svo skellt sér á Nasa og spriklað smá á dansgólfinu þar. Sögur fara af því að ég hafi verið mjög hress þar, jafnvel dansað við ALLA á dansgóflinu, get samt ekki alveg staðfest það sjálfur vegna áfengiseitrunnar, já það er líklegast eina skýringin á þessu öllu saman þar sem ég hreinlega man ekki aaaaalveg allt sem gerðist þetta kvöld, en ég held líka bara að það fólk sem hafi verið í kringum mig (td TINNA) sé búið að vera að láta mig halda að ég hafi verið að gera eitthvað sem ég í raun var ekkert að gera...eins og að dansa og blása í eyrun á einhverjum...aaanywhoo...
Hvað er svo á dagskránni, jú kallinn hann Kritz kemur núna um helgina, maður verður að ná einum köldum með honum og svo verður áfram haldið með íbúðina, með aðstoð þrælanna í kringum mig. Og vonandi fyrir mánaðarmótin þá verður minn fluttur inn að fullu og mun halda kleinu og kakó partí...oo hvað það verður nú ljúft.

Jæja nú er komið að ykkur..segið mér eitthvað slúður...

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Dagur 1 sem íbúðareigandi...
Jæja kl 22:00 í gærkvöldi fór kappinn og náði í lykilinn að kofanum sem hann var að versla sér. Skrapp svo þangað til að sjá hvernig gengið hefði verið frá og vitiði ég bara fílaði nokkuð vel vitandi það að ég væri búinn að selja sálu mína til bankans fyrir þessa kompu. Ég hlakka meira að segja til að fara að ræða við félagana um hvernig málningu ég á að versla, hvernig best sé að laga baðherbergið, hvort ég eigi að taka yfirdrátt á sálu mína og fjárfesta í parketi og þessháttar. Það verður líklegast verkefnafundur í kvöld eða á morgun þar sem þessi mál og fleiri verða rædd yfir pizzu og kók í nýju kompunni...aka Casa de la Flabbo. Eflaust ef ég næ að hætta að vera svona rosalega latur þá kannski hendi ég upp smá myndasíðu þar sem myndir frá operation kíttíkofann verða birtar...en nóg um wannabe loforð við bara sjáum til...

Hvernig væri svo að fólk færi nú að reportera inn, maður er hættur að heyra frá hinum þessum kauðum, er fólk almennt bara ekkert að gera neitt spes þessa daganna? Hvernig væri maður myndi nú heyra frá ykkur annaðhvort hér í commentum eða via email...