Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

miðvikudagur, mars 31, 2004

Afhverju í ósköpunum ætlast fólk til að maður sé vaknaður kl 8:00 þó svo maður sé mættur í vinnu, er ekki allt í lagi með suma, skilja þeir ekki hvernig veröldin virkar? Það er big NO NO að ætlast til af tölvunarfræðing að vera up and running kl 8:00, alveg sama hvert tilfellið er, so sorrí bara gengur ekki. Tölvunarfræðingar líkt og aðrir fræðingar þurfa alveg til svona 9:00 - 9:30 bara til þess að vakna, fá sér kaffi og ná að lesa helstu uppfærslugreinar á hinum og þessum tólum En það er eins og sumir spandexklæðandi kústhausar fatti þetta ekki, heldur á hverjum morgni, þegar ég mæti, þá " hey varstu búinn að kíkja á þetta sem ég ræddi við þig um rétt áður en þú labbaðir út úr húsi í gær?", aha eins og ég fari heim, eftir vinnu, setjist við skrifborðið mitt og velti fyrir mér einhverju micrómáli sem að getur alveg beðið til morgun, innnmitt, ég held að sumir ættu að eignast líf utan vinnu...ASAP,...og hætta að bögga mig kl 8:00 með innantómum aulaspurningum og leiðindum.

Eru annars ekki allir í stuði?

mánudagur, mars 29, 2004

Til eru tæki með allskonar "fítusa" og sumir þessara "fítusa" eru sérhannaðir svo að steikt fólk geti farið enn meir í taugarnar á manni en vanalega...hér kemur smá listi.

"STUPID FÍTUSAR Á STÚPID TÆKJUM TOP 5 LIST " ( ekki í nenni tiltekinni röð)
======================
1. Pólýtóna GSM símar -- Sumt fólk skilur ekki tilgang GSM símanna, heldur að þeir séu til þess gerðir að skilja eftir á skrifborðsborðunum sínum þegar það fer eitthvað í burtu. Svo þegar síminn hringir, með fölskum dirty dancing pólýtónum, öllum þeim sem sitja á hæðinni til mikillar gremju að þá er ENGINN til þess að svara, og uppfinningadúdinn sem fann upp þessa pólýtóna...þeinks a lot man! Hvernig væri svo að setja í lög að fólk eigi að hafa þessa síma á sér at all times svo að við hin sem hugsum ekki bara um okkur sjálf þurfum ekki að þjást...eða jafnvel að láta fólk læra á þessa símadruslur, kenna þeim á silent og allt það.

2. Speakerphones -- Ég veit ekki hvaða ofurplebbi fattaði upp á þessu tæki, þetta er eitt það mest pirrandi tæki í sögu pirrandi tækja, hversu margir nota virkilega þennan fítus svona vegna þess að þeir eru með báðar hendur uppteknar, ég skil sko ef að það er símafundur í gangi...það er kúl, en þegar einstaklingar í einhverjum cubicle nota þetta svo að allir heyra við hvern hann er að tala við..það er bara steikt. Fólk sem heldur að þessi tæki séu kúl á að sekta og skuldbinda þau til þess að fá sér headset og líf.

3. Framljósarúðupisssprautur -- Eruði að grínast með stúpid fítus, hafið þið einhverntímann notað þetta, og ef svo er hafið þið séð einhverja aðra breytingu á framljósunum en að þau eru blaut? Ég sé ekki tilganginn með þessum fítusi, líklegast á stað þar sem það er ryk allsstaðar, svona ryk sem festist líka alveg rosalega á gler, líklegast gæti þetta lagað eitthvað þar, en hversu margir staðir utan við miðausturlönd er líklegt að finna þau skilyrði??..og hverjir myndu nota þetta, jú einhverjir pajero plebbar á leið í laxveiði, ekki það að þeir viti tilhvers þetta sé, en bara að nota alla fítusa bílsins. Stúpid!

4. Talandi vog -- Einmitt það sem að maður óskar sér, vog sem segir manni hversu feitur maður er orðinn, það er ekki nóg að sjá töluna flassandi í rauðu, heldur þarf einhver stúpid tölvurödd að segja mér að ég sé feitur. Svona græju sá ég í partíi einu sinni og var það alveg í anda nötterans sem ég var í partíi hjá....STÚÚÚPID!!!

5. Tupperware dallar sem þola ekki örbylgju -- Hugsa sér hálfvitaskapinn, að hann geymsludalla sem má ekki setja í örbylgju, nú síðast um daginn þá einmitt henti ég leftover kjúkling og hrísgrjónum í örrarann og beið spenntur þar sem ilmurinn mangaðist með hverri sekúndu, svo skyndilega breyttist ilmurinn í svona plastbrunalykt og þegar ég opnaði örrarann var dallurinn nánast farinn og eftir var köggull af kjúlla og plasti með smá hrísgrjónum on top. Neinei þá er smá merki á botni hvers dalls sem segir hverjir þoli örrarann og hverjir ekki.....HOW STUPID IS THAT..ég meina já á þessum bíl þá virkar 4 gírinn ekki en þessum gerir hann það, á þessu videotæki virkar fwd en þessu ekki. ARGANDI STÚPID!!

Farinn að stilla símann minn til láta mig vita hvenær ég á afmæli...

miðvikudagur, mars 24, 2004

Ó hversu leiðinleg þessi veröld væri ef allt þetta furðufólk væri ekki til. Bara hér innandyra hjá mér þá má finna alveg ótrúlegustu týpur af fólki. Til dæmis er einn sem þrátt fyrir verulegan hárskort reynir nánast í hverri viku að breyta um greiðslu, eina vikuna blæs hann öll bæði hárin aftan á hausnum fram og reynir að notast við George Michael lookið (nema hvað hann er rauðhærður og sköllóttur), aðra vikuna mætir hann með að maður haldi svona breta klippingu, allaveganna greiðast svona 3 hár í hægri sveigju yfir skallann og svo má ekki gleyma Don Johnson lúkkinu þegar hann blæs allt aftur og greiðir það næstum í týgó. Annar starfsmaður labbar alltaf 2 hringi í kringum bílinn sinn og tekur í allar hurðir, skoðar glugga, sparkar í dekk áður en hann fer inn til vinnu, og áður en hann gerir nokkuð þá þarf hann að þamba 1 kaffibolla áður en dagurinn getur byrjað. Kellingarnar á neðri hæðinni eru svona eins og veldisvaxandi fuglabjarg, þegar ein byrjar að tala að þá byrja næstu 2 líka að gjamma og hver þeirra reynir að tala hærra en hinar og því endar þetta á allsherjar öskri sem þagnar svo snögglega þegar átta sig á að viðskiptamaðurinn sem stendur við afgreiðsluborðið er búinn að kveikja í sjálfum sér til að ná athygli. Enn annar starfsmaður hérna hefur snemma orðið þunnhærður og því ákveðið að fá ígrætt svona hárgræðlinga, nema hvað hann hefur villst óvart í kústagerðina og því má segja að ef maður horfir á hann frá ákveðnu sjónarhorni þá má segja að hann líkist einum af þessum typical strákústum. Svo má ekki gleyma fertugu húsmæðrunum sem klæða sig eins og þær séu 17 ára, í netasokkabuxum, stígvélum sem ná upp í nára, pylsum sem granínaríurnar lafa niður úr og flegnum bolum sem sýna aðeins of mikið fyrir magann minn. En svo fer maður að hugsa eftir að hafa verið að hlæja af þessu öllu, hvernig ætli þau horfi á mig, hmm, ætli þau sitji oft inn í kaffistofu og segi...WAAAHAHAHAHA...sáuð þið enter strákinn í dag, klæddi sig bara í gallabuxur og venulegan bol..waaaahaahahaha...og svo..haha...og svo...og svo er hann alltaf bara með eitthvað gel í hárinu sem lætur hárið á honum rísa eins og á broddgelti...waaaahahahahaaa...og ekki sé að nefna eyrun á honum....þau eru svona eins og baunir festar á melónu...baaaahahahahaaaa...ekki nema að þau dái mig fyrir mína geislandi fegurð og yndisþokka...hmmm..það er alltaf möguleiki..hmm hvort finnst ykkur líklegra?

Farinn að púðra á mér nefið...

þriðjudagur, mars 23, 2004

Kvenfólk, ef það er einhver karlmaður sem hefur áttað sig á stýrikerfi kvenfólks þá vinsamlegast látið mig vita, öll ráð þegin. Þess stofn "kvenfólk" er bara með það ruglaðan syntax að ég geti náð að þýða þeirra kóða almennilega...hahaha..almennilega segi ég...hahaha..ég átti við EKKI. Hvernig á maður að vita hvað þær meina og hvenær þær meina það, hvað þær vilja og hvenær þær vilji að, hvenær má maður stríða þeim, hvenær má maður það ekki, hvenær á maður að halda kjafti og hlusta og hvenær á maður að vera sítalandi, hvenær á maður að halda utan um þær og hvenær á maður að halda sig fjærri, hvenær á maður að vita að þetta bros þýði að hún sé innilega að brosa til manns en næst þá er þetta kaldhæðnisglott. Ég hef gert ítarlega rannsóknir á þessu ferli kvenna, skráð niður, búið til gröf og skífurit, títrað og basamælt, en engin lógíg finnst í þessum blessaða kvenn syntax , það er eins og að náttúrulögmálin eigi ekki við kvenn syntaxinn og að hann hafi bara verið búinn til til þess að valda mönnum eins og mér hausverk. Afhverju ekki bara að hafa þetta hreint og beint eins og hjá okkur karlpeningnum, það er bara EKKERT flókið við okkar syntax, ef við erum svangir, borðum við, ef okkur finnst eitthvað asnó þá segjum við það, ef við erum fúlir þá ERUM við fúlir og látum allt og alla vita af því, ef við erum gra... þá fer það ekki heldur fram hjá neinum, ef að gaslosunar er þörf þá er náð í kveikjara og hlegið af því...Hvernig væri barasta að reformatta þessar kvennsur og gera lífið einfaldara...

Farinn að freta...

mánudagur, mars 22, 2004

Það er alveg glettilegt hvað maður getur verið í góðu skapi þrátt fyrir að A: Það er mánudagur, B: Það eru 3 feitir smiðir upp á þaki (sem by the way er 18 mm krossviðsplata sem einangrar EKKERT) með sagir og hamra og borvélar að leika sér með járn og C: sólin skín í gegnum þakgluggana hérna beint í andlitið á mér. Ég held að þessi kátína mín sé vegna þess hversu góð helgin var og þar má þá sérstaklega þakka það að ég fór út úr bænum...það að fara út úr bænum þó ekki nema í 1 dag er alveg yndislegt, orkustöðvarnar, allar 7 fyllast á augabragði og lundin verður svo miklu léttari. Samstarfsfólk mitt sem þekkir mig á mánudögum sem úfna fýlda tröllið...þramma um hokinn, með skeifulagað fés og urra á allt og alla þá sem voga sér að segja eitthvað við mig, þó ekki nema "daginn Brynjar" og þeir sem gerast svo djarfir að kasta á mig kveðju fá til baka brennandi augnarráð og fas fyrirlitningar með til heyrandi mumbli...en jú samstarfsfólk mitt tók sérstaklega eftir þessu í morgun og þótti gott að sjá tröllið á sína góða daga þó fáir séu stundum...

Vona bara að þið séuð öll að njóta þessa sólríka dags eins og ég, með bros á vör :-)

Tröllið er farið að þramma...

föstudagur, mars 19, 2004

Jeremías Jósafat hvað ég fór á leiðinlega mynd í gær, "Twisted" - "In a place, one woman, desire, in a time..." allar þessar rullur og fleiri sprungu í andlitið á mér þegar þessi endaleysa byrjaði. Samuel L. Jackson og Ashley Judd eru aðalleikararnir og sorglegri frammistöðu og þynnri söguþráð hef ég ekki séð síðan ég horfði á Bad Taste um árið...vonast ég til að allir spari sér pening og tíma og fari EKKI á hana.

En allaveganna helgin komin, virðist ætla að vera róleg svona til að byrja með, bíó og eitthvað chill í kvöld en það er vonandi að morgundagurinn verði eitthvað djúsí, gæti hugsast að það verði grill og bjór og gítar...sem klikkar ekki.

Föstudagar...afhverju er fólk yfirleitt látið vinna eftir hádegi á föstudögum? Er einhver sem veit það? Ég persónulega hef ekki grænan grun, finnst það eiginlega hálf fáránlegt að halda fólki til 5 á föstudögum þegar menn vita alveg að það verður ekkert gert nema sörfa internetið og þamba kaffi þar til klukkan slær 5. Til dæmis í dag þá var ég dreginn út í hádeginu af mínum yfirmönnum...á "fund" sem fór aðallega í að tala um hvað mun gerast í sumar og á meðan slöfruðum við í okkur allskyns góðgæti, síðan þegar komið var hingað var aðeins kíkt á póstinn og svo bara restin af deginum í að stara á klukkuna mjakast áfram, hægt og bítandi eins og gigtveikur snigill. Ég legg til að héðan í frá verði föstudagar bara til 12:00, með því má spara fullt (rafmagn, mat, pappír og kaffi) og starfsmenn verða almennt ánægðari með að komast heim fyrr...hvað finnst ykkur?

Mumblarinn er farinn í kaffipásu XVI

miðvikudagur, mars 17, 2004

Og hvað er að frétta af þeim gamla, jú það er svosem ekkert mikið, búinn að vera að vinna (eins og það sé eitthvða nýtt), búinn að vera í matarboðum, á ráðstefnum, á námskeiðum og bara svona þetta hefðbundna stuff. Reyndar verið svolítið duglegur að nýta helgarnar í bjór og gúff sem er GOTT.
Mumblerinn er búinn að versla sér eitt stykki miða til DK þann 21.maí, ásamt Geira tölvunördi, það verður brilliant skemmtun, Metallica tónleikar, Strikið, Tívolí, Hereford, Ráðhústorg, Pylsa, Smörbröd og önnur svona dönsk menning verður tekin með vinstri nös ásamt því að rölta um með kameru og gpsinn hans Kristjáns og líta út sem sannir túristar.

Jæja nóg af bulli, farinn að slást við villidýrið...
Enn meira brill
En núna..hmmm
Hmmm ætli mumblið virki..hmmm
Allt í tómu tjóni, ekki búinn að blogga í 3 mánuði, shout outinn dottinn úr sambandi, fólk farið að spekúlera hvort ég sé lifs eða liðinn þar sem maður hefur ekkert póstað á mumbling machine...skelfilegt ástand!. Mun reyna að blogga núna endrum og eins, taka til á síðunni og setja svona einhverja pósta fyrir þá maður talar ekkert beint oft við. Mun verða tiltekt í kvöld á síðunni og því vonandi að eitthvað vitrænt bull birtist hér eigi síðar en annað kvöld kl 19:00 að færeyskum staðartíma.

Þangað til, mumblið áfram...