Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

fimmtudagur, júní 30, 2005

Pælið í þessu...

Papercut á milli puttanna...pælið íðí...

Anywhooo, margir eflaust búnir að heyra af því en ég er að hætta hérna í vinnunni núna fljótlega, er að fara eitthvað annað, hlakka mega til. Mest skrítið hvað þörfin til að klára sín verkefni minnkar um svona góð 390% við það að maður segi upp...get ekki beðið eftir að hætta og fá ferskt vinnuumhverfi.
Fyrsta helgin í júlí framundan, veðrið á vera leiðinlegt þannig að maður mun stunda held ég bara innipúka þessa helgina, engin útilega, fátt leiðinlegra en að tjalda í rigningu. Teiti heima á laugardaginn skilst mér, mér er boðið...eða það vona ég, en annars verður þetta bara nokkuð melló helgi held ég.

Hvað ætlið þið að gera annars um helgina?...

mánudagur, júní 27, 2005

In the year 2005...
Árið 2005 hefur so far verið nokkuð viðburðaríkt og mér sýnist 2006 ekkert vera síðra. Hvað hefur og mun gerast á árinu, lets reflect. Hápunkturinn er auðvitað að Arndís og Hannes eignuðust Villa Kalla (sem var by the way skírður í gær), Brynjar keypti íbúð, Gunni keypti íbúð, Gulla keypti íbúð, Kristján trúlofaði sig, Brynjar sagði upp vinnunni, Jón fær greinar birtar í vísindatímaritum, Tinna fær stöðuhækkun (vonandi), Maren fór að vinna í USA, Baldur skipti um vinnu, Ásgeir fór að koma trekk í trekk í blöðunum og er að fara að gefa út plötu. Eflaust verður miklu meira sem á eftir að gerast á þessu ári eða hefur gerst og ég man ekki, en mér finnst við hafa verið nokkuð dugleg so far, ég td hef gert meira á síðasta hálfa ári en ég hef gert nokkurn tíman gert...verslað mér íbúð, byrjað sambúð, sagt upp vinnunni, byrja í nýrri vinnu svo í ágúst, tætt íbúðina í sundur, byggt upp aftur...búið að vera gaman.
Stærsti viðburður komandi árs verður svo gifting Kristjáns og Suzanne í Iowa í maí, úff hvað það á eftir að vera skemmtileg ferð, mest farið að hlakka til, vona sem flestir mæti þangað, en sama hvernig verður þá verður þetta brilliant ferð.

Jæja best að hætta dagdreyma og fara að sækja kaffi..ég meina vinna...

mánudagur, júní 20, 2005

Arbeit macht frei...eða eitthvað..
Jæja maður er búinn að vera í fríi síðan á þriðjudaginn var og úff hvað það er erfitt að setjast niður að reyna að fara að vinna. Ég og Tinna skruppum upp í bústað, vorum þar í 2 nætur, geggjað veður, 20 gráður og sól allan tímann og það var sko ekkert gert nema slappað af. Farið í laugina, mini golf, grillað, dvd, ps2 og so on. Svo var grillað og djúsað á fimmtudaginn, fagnað 17.júní með grilli og meira á föstudaginn og svo haldið áfram út helgina, nú situr maður hérna með kjötsvitann bogandi niður kinnarnar og belg eins og á meðal rostung. Átakið byrjaði í dag.
En já mikið asskoti var gaman í fríi og svona líkast til nauðsynlegt, maður gat alveg slökkt á vinnunni í 5 daga, sem er alveg nauðsynlegt verð ég að segja...

Verkefni vikunnar: Redda tölvutengingunni heim, redda rimlagluggatjöldum, íhuga kaup á ipod og svo minnka belginn um svona eins og 3 rúmmetra...

Blitz....

miðvikudagur, júní 08, 2005

Da toilet is in da hás....
Brilliant fréttir fyrir alla klósettáhugamenn, en superflush 9000 var installað heima í gær, með meira rennsli, stærri tanki og hita í setunni....ok kannski ekki hita í setunni en setan verður heit mjög hratt. Brutust út mikil fagnaðarlæti í gærkvöldi og má segja að erfitt var að halda aftur af tárunum þegar fyrsta sturtunin fór fram. Formleg vígsla verður svo 17.júní þegar dorrit og óli koma og tefla við páfann.

Blitz

mánudagur, júní 06, 2005

Hey jó sjibbí sjibbí dúddídadei...
Jæja, loksins er maður fluttur inn, ekkert klósett en maður er fluttur inn, ekkert baðkar en maður er fluttur inn, enginn vaskur inn á baðherberginu en maður ER fluttur inn. Ákvaðum í gær að nenna þessu ekki lengur og fengum félaga okkar til að skutlast eftir beddanum á grenið og volla..sváfum eins og klettar í nótt. Nú hefst enn önnur bið eftir pípara, vonandi kemst hann í kvöld eða á morgun að tengja toilettið, vonandi, ég get ekki beðið eftir því að vera með lifandi vísindi á þessu fallega fallega postulíni. Slotið er í þokkalegu standi, stofan orðinn nokkuð full af hlutum, vantar reyndar eitthvað á veggina, á eftir að fjölrita nokkrar myndir af mér. Tölvan er reyndar ekki flutt heldur, en það mun gerast í kvöld eða á morgun.
Gaman er að segja frá því að við vorum búin að panta þetta líkast til flotta baðkar frá Byko, svona akrýl baðkar, plain en flott, pöntuðum þetta í apríl lok, gámurinn kom loksins í síðustu viku þannig að við brunuðum brosandi að fara að skoða gripinn upp í byko, neinei þá hafði sölusauðurinn annaðhvort ekki verið að hlusta á okkur eða hreinlega ekki haft hugmynd um hvað hann var að blaðra þegar við vorum að tala við hann. Þetta baðkar sem kom var með svona forljótum gráum plasthöldum, eins og maður þurfi á einhverjum helvítis höldum að halda, ertu ekki að grínast, og þar með fóru baðkarsdraumarnir út um gluggann, alveg fúlt. Reyndar hef ég verið að horfa á leiðir til að losa mig við þessar höldur og setja bara krómeitthvað í staðinn, en það kemur betur í ljós í vikunni. Enn allavegaenna...partí í kofanum við tækifæri..jee

Farinn að gúffa..