Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Frekar andlaus í dag, búið að vera erfiðir vinnudagar í gær og í dag, mikil heilaleikfimi og dót sem ég eiginlega skil lítið í, en svona er þetta, maður verður að kljást við það líka og helst læra af því. Alltaf gaman að lenda í svona vandamálum sem maður veit ekkert hvernig á að leysa og vera svo eiginlega einn á báti með sínum hugsunum og reyna að finna út úr þessu...stuð..jee...já og með vandamálum á ég við að eins finna út úr því afhverju tafla í kerfi sem inniheldur haug af tvöföldum færslum vill ekki skilja group by function þó svo ég sé búinn að setja þá stillingu á töflulevel og sorta en draslið kemur enn tvöfalt úr henni þó svo í öðru kerfi virki það allt og er eins stillt....skrítinn heimur þessi forritunarheimur.
Það var verslað tarket í fyrradag, já tarket, ekki parket...en stefnan er að leggja smá tarket um helgina og hækka verðgildi íbúðarinnar um svona 500 þús kall og vera með golfefni sem þolir ágang kvenna á öflugum skóm.
Jæja koffítæm...já og hérna er ein mynd svona til að brighten up the day..

mánudagur, janúar 23, 2006

Hor hor og meira hoooor...
Ég var í síðasta pósti að monta mig að ég væri að fara í bústaðarferð með frúnni, jújú ég gerði það, og kíktu J og G við á föstudagskvöldið og við áttum alveg fínt kvöld saman, en svo á laugardaginn þá barasta var eins og hor heimsins sameinaðist í hægri nösinni á mér og hefur ekki farið síðan. Síðasta vika er svo búin að fara í horhreinsun og annan aumingjaskap því tengdu.
Þessi helgi sem var að líða var aðeins betri, farið út að borða á föstudag..enda bóndadagurinn..svo á laugardag setið sveittur með strákunum í nördasessjón og gærdagurinn fór í að telja táneglurnar, margfalda með 376, bera úrlausnir saman við tunglstöðu fjærstu tungla júpiters og finna út líkindin á að ég vinni lottó á miðvikudaginn...eða í grófum dráttum ég gerði fátt.
Reyndar eru nokkrir hlutir sem að eru á dagskránni núna fljótlega og vona ég að sum ykkar verði ekki hissa þegar ég fer að hringja í ykkur...en nánar um það síðar

Farinn að næra magasárið...

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Mmmm life is good..
Ég verð nú bara að segja það, held manni hafi sjaldan liðið jafn vel og þessa daganna, maður er svona að verða ágætlega stöðugur í peningamálum, maður er í góðu sambandi, maður á þak yfir höfuðið, nóg af vinapakki allt í kring og svo er alltaf eitthvað að gerast. Næstu helgi ætlum við Tinz að kíkja upp í bústað og njóta þess að sleppa frá bænum í smá tíma, get ekki beðið, grilla eitthvað gott, fá sér smá rauðvín og bara hafa það súperkósí. Ekki sakar að J & G eru líka á leiðinni upp í bústað þarna í nágrenninu og ætla að gera smá pit stop hjá okkur, taka í spil og kjammsa á einhverju góðu eins og eina kvöldstund...jee.
Annars þá eru plönin fá framundan, sem er svosem gott þar sem fólk er eflaust komið með upp í háls af samkomum, en samt held ég að þætti að plana eitthvað svona gettogether at some point, eins og að hittast og spila 1 sinni í mánuði eða eitthvað álíka, bara svona til að geta haft afsökun til að sprengja belginn á einhverju og dreifa slúðri. Hvað finnst fólki með það?

mánudagur, janúar 09, 2006

Sæl veriði nær og fjær, til sjávar og sveita...gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu. Nú er maður ekki búinn að blogga í hart nær mánuð og því kominn tími á smá pistil.
Þessi hátíð sem var að ljúka núna á föstudaginn skyldi eiginlega lítið eftir sig hvað kósíheit og skemmtun varðar. Jú ég svaf út á aðfangadag og opnaði pakka og borðaði góðan mat, en eiginlega þar með lauk fríinu, þessi jól einkenndust af vinnu, leiðinlegu haustveðri og semigóðu áramótaskaupi. Ég sem hafði planað að reyna að gera eitthvað gáfulegt með vinum sem voru á skerinu í jólafríi endaði bara að vinna öll jólin og rúmlega það, algjör skandall.
En jú það var ýmislegt skemmtilegt sem gerðist enga síður, Gulla hélt brilliant áramótateiti sem ég held að allir séu sáttir með, ég eignaðist mega kúl kameru, Jón og Gunna ákvaðu að negla sig semi föst á skerinu í óákveðinn tíma, Kristján og Suzanne héldu brúðkaupsmóttökuveislu/afmælisveislu, frakkinn hennar Siggu mætti og kenndi íslendingum að mótmæla og svo ýmsir smáhlutir.
Ég reyndi að strengja áramótaheit þessi áramótin, er að vona að þau endist eitthvað og þau hljóma einhvernveginn svona. Ég ætla að hætta að þyngjast, ég ætla að vera duglegri að bögga vini og ættingja, ég ætla ferðast meira innanlands í ár en í fyrra, ég ætla að tala við ömmu mína lágmark 2svar í viku, ég ætla að vera meira úti í ár en í fyrra, ég ætla að skemmta mér meir en í fyrra.

Jæja nóg mumbling í bili, rokinn...