Vissu þið að apríl er ekkert smá flottur mánuður, núverandi apríl nær ekki nema 1 heilli vinnuviku, allar hinar vikurnar eru annaðhvort mengaðar af mars eða páska-sumar stuffi. Alveg brill.
Jæja nú er maður búinn að stökkva út í djúpu laugina sko, ég og ace gerðum með okkur pact að stórminnka við okkur allt sukk fram að Metallica í maí, sem á eftir að verða erfitt. Í þessu pacti segir að við verðum að halda okkur frá sælgæti og megum bara 1 sinni í viku fá unhealthy gúff. Vigtun fer fram í sundlaug vesturbæjar hvern sunnudag og er markmiðið að ná okkur niður úr sækúastærð niður í reallyreallyridiculuslygoodlookingstærð. Ég er nú þegar að vinna í svona pacti við eitt stykki málfræðihorn og mér sýnist ég vera að tapa því, þannig að það er best að reyna sjá til þess að ég rústi ace.
Um næstu helgi er svokölluð kúrekaferð fyrirtækisins, verður farið út á land alla leið suður í Hafnarfjörð og slegið upp búðum þar nærri einhverri bykkjuleigunni, verður fólk skyldað að fara á bykkjubak og svo eftirá línudans, yes good people Benji mun þurfa stíga létt spor í anda Kenny Rogers á laugardaginn, þannig að ég mun líklegast þurfa að gera undantekningu á ofangreindu pacti og hella mig blindfullan svo að það gerist í góðum anda. Allir karlmenn fyrirtækisins fengu póst í gær um að þeir ættu að íhuga að safna smá skeggi svona til að fá Clint Estwood fílinginn fram, en eflaust átta þeir sig ekki á því að um 80% karlmanna hér innandyra þyrftu svona tjaaaa u.þ.b. 3 vikur bara til að það sjáist að það sé ekki bara kusk í andlitinu á þeim. Svo er það besta, það er ætlast til að maður mæti í kúrekabúning, ég spyr mig, hveru margir eiga eitthvað kúrekadót, jú jú ég á kúreka dót, en það passaði á mig þegar ég var 5 ára og hljóp um nakinn með kúrekahatt og vatnsbyssur og skaut allt sem á vegi mínum var, ekki viss um að ég geti notað það í dag...það verður skrautlegt að sjá hverjir mæta í búning, ég ætla ekki að mæta í búning, en hafa svona samt hatt og mustage on the side svo ég geti sagst vera ríkur Texasbúi ef á reynir.
Allaveganna, farinn að snara nokkrar bykkjur...