Miðvikudagságrip...
Helgin sem leið var fín, smá teiti heima á skeljó á laugardaginn, öl, gítar og svo bæjarferð, einstaklega skemmtilegt og held ég að allir hafi verið sammála um það. Sunnudagurinn fór í hjúkrunarstörf og hreingerningar, en Tinna lá upp í sófa og gat ekki hreyft sig vegna verkja sem voru afleiðing heilsuræktarátaksins mikla...en svo overall barasta fínasta helgi.
Í gær fékk ég svo langþráð skilrúm hingað í vinnuna, ekki nema 3 mánaðar biðtími og mjög svo gott að fá þau nú þegar maður er að fara að hætta. En núna er maður lokaður inn í sinn cubicle, með nægilegt skyggni til að geta lagt sig örlítið eftir matinn og leyft sér að kíkja í bubbles af og til, sem er algjör nauðsyn ef maður á að endast daginn hérna....fyrir þá sem ekki vita þá er bubbles
þetta.
Flest hexanna eru mættar aftur til vinnu, alveg merkilegt hvað svona litlar kerlingar geta mjólkað sálinna án lítillar fyrirhafnar og það yfir talsverða vegalengd gegnum þó nokkra gifsveggi. Überhex FrauNeedaGettaBreina mætti til vinnu á mánudag og ég er ekki frá því að fólk sé almennt fýldara eftir að hún kom, gengur um þrammandi meðal fólks dreifandi lásí kommentum til allra sem á vegi hennar verða.."oj ertu í þessum bol, hann gerir þig svo feita...þú ert svo asnó svona sköllóttur...oj hvað gerðiru við andlitið á þér". Überhex FrauNeedaHevaSexa mætti svo í dag, ég held hún eigi núverandi heimsmet í skeifu, þá munnskeifu, hef ekki séð hana brosa, reyndar las ég á landsbókasafninu um daginn að það sást í bros 1946 þegar blindur tannlaus grænlendingur strandaði hér eftir 5 vikur á ísjaka og álpaðist upp á hana fyrir slysni, ruglaðist á henni og selsviðhaldinu sínu. Svo er reyndar ein í fríi ennþá, sem betur fer, en þegar þær eru allar á sama tíma í vinnunni þá magna þær hvor aðra upp og fólk byrjar að ganga á veggi og gráta án skýringa. Sem betur fer fer maður að sleppa héðan..
Jæja bubbles kallar...verðum í spotta...