Nú væri gaman að vera með frjóa hugsun og geta komið með eitthvað ógeðslega sniðugt til þess að blogga um, en hvað veit ég, 2 dagar síðan ég startaði þessari síðu, 2 dagar síðan ég skrifaði síðast og það er ekkert nýtt sem mig dettur í hug til að ræða um, pathetic.15 líf sem mar lifir. Allan daginn situr maður við gervi birkiborðið sitt úr ikea, á 5 þúsund króna pennastólnum sínum, lagandi einhverjar asnalegar villur í asnalegu kerfi fyrir asnal..ég meina sérstakt fólk, og allan daginn á meðan maður er að vinna þá spretta svoleiðis upp hugsanirnar um lífið og tilveruna, málefni líðandi stundar, merkingu alheimsins frá stærstu stjörnuþoku niður í minnstu nifteind, heimspekilegar pælingar um afhverju fólk borðar ananas á hamborgara, óþrjótandi málefni sem stoppa ekki að koma upp á meðan maður þarf einmitt að vera að hugsa um annað, en um leið og maður kemur heim, nýbúinn að borða, fer aðeins á klóið og léttir aðeins á sér, sest svo fyrir framan the mumbling machine, að þá er eins og allt barasta hafi farið með losuninni á klóinu, ekki ein stök hugsun eftir, ekki ogguponsupínkulítil frumleg hugsun eftir. Hvað verður um allar pælingarnar? Er einhver rofi þarna upp sem lítill gamall karl stýrir og hann vinnur bara frá 8 - 5, slekkur síðan bara á öllu heila klappinu..."Jæja ég er búinn að fá nóg í dag, best að skella sér heim og horfa á rerun af Matlock"....ég allaveganna næ þessu ekki, ef einhver (báðir sem vita af þessari síðu) veit afhverju eða hvernig má laga eða wha da fuu er í gangi, þá má hinn sami alveg deila þessari vitneskju með mér...
Jæja nóg af mumbli í bili, farinn að sortera sokkana mína...
By the way, bloggsíða vikunnar er paysitforward , snillingur(ar) með meiru.
Jæja nóg af mumbli í bili, farinn að sortera sokkana mína...
By the way, bloggsíða vikunnar er paysitforward , snillingur(ar) með meiru.
