Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

föstudagur, nóvember 28, 2003

Nú verður sko stuð hjá mínum, haldiði ekki að honum hafi ekki verið boðið af aðdáenda á Þakkargjörðarhátíð í kvöld, ofurbandarískauubermatarmikla Þakkargjörðahátíð. Þetta verður tær gargandi snilld, matur, drykkir, gott fólk og ég, þetta barasta getur ekki klikkað. Er ekki reyndar búið að fá staðfestingu á þessu boði né hvernig maður þarf að vera til fara, en það hlýtur að ráðast með deginum. Ég stefni samt á að vera annaðhvort í köflóttri skyrtu, smekkbuxum og með stráhatt eða þá í snjóhvítum gallabuxum, jakka ásamt kúreka hatti og kúrekaskóm, þ.e.a.s. ef að ég fæ engin önnur tilmæli um klæðaburð.
"Sleef" maður er bara búinn að fasta í allan dag útaf þessu, úff djöö ætla ég að troða í mig, það verður borðað þar til að maturinn verður kominn upp í kok...og eftir það verður notað prik til að hjálpa við átið..kalkúnn, stuffing, kartöflur, baunir...sleeeeef

Annars er plan helgarinn nokkuð þéttsetið, Thanksgiving í kvöld (Sleeeef), Skírn á morgun og Afmæliskaffi á sunnudag, þannig að manni á sko ekki eftir að leiðast, sem og ég á bjór heima sem er orðinn vikugamall og þarf að fara að klára...

Þannig að kæru Zekkir, að ef ég mumbla ekkert meir í dag þá segi múa bara góða helgi og vona að ykkar verði ekki eins skemmtileg og mín...

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Díses, enginn gat upp á þessu...þetta er Arndís...dööö...

Já Arndís beib er stúlka ein frá Sealpondcapetown sem ég þekki mjög vel....sko dísa ég skrifaði um þig hér ;-)

Síðasta vísbending...

Þessi manneskja var syndari...
Þessi manneskja er wannabesveitamanneskja..

hehehe

ok nú ættu þið sem þekkið til að vita hver manneskjan er...

Næstu vísbendingar...

Þessi manneskja talar oft mikið, en oft segir hún varla orð..
Þessi manneskja er innan um allt og alla einn daginn en næsta ekki..
Þessi manneskja er vinur vina sinna en gefur sér samt alltaf tíma til að sinna sjálfum sér..
Þessi manneskja er heiðarleg..

Um hvern er verið að tala, setjið stafi ykkar við kommentin svo ég viti hver segir hvað..dumb dumbs...

Sem og kíkt á þessa síðu því hún er við hæfi þar sem þið fattið ekki um hvern ég er að tala hér að neðan...
Þið sem þekkið ekki þá manneskju sem ég var að spyrja um áðan, getið farið á þessa brill síðu sem hefur allar þær ástæður afhverju fólk ætti ekki að gifta sig...enjoy!
Fyrsta spurning dagsins: Um hvern er ég að skrifa? (Sumir þekkja þessa mannaeskju ekki, but I don´t give a french fries)

Þetta er manneskja....anyone?!
Þessi manneskja er með hár...anyone anyone??!!
Þessi manneskja er með miiiiiiikið hár....nú væri ég sko búinn að fatta þetta
Þessi manneskja er gleraugnaglámur...thiz is zoo obvious..
Þessi manneskja er ákveðin...you stuuupid people, ekki búin að fatta enn??

Fleiri vísbendingar þegar líður á daginn!!

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Loksins loksins eftir mikla bið og fjölda fyrirspurna þá hefur Kritz bætt inn comment fítusi á síðuna sína. Endilega kíkið á kaddlinn og commentið á hans skrifverk. www.geldingur.com

Svo er svona létt pæling dagsins, það eru 28 dagar til jóla, og þar sem maður sefur þetta 7 tíma á sólarhring þá eru þetta ekki nema rétt tæpir 20 dagar, ég eyði 9 tímum 5 daga vikunnar í vinnu og því í raun eru ekki nema 12,5 dagar sem ég hef til að gera allt sem þarf að gera fyrir jólin....sem er samt ekki beint rétt því ég æfi 1.5 tíma á dag 4 daga vikunnar og eru því ekki nema 11,5 dagar eftir. Það er alveg nauðsynlegt að horfa á sjónvarpið svona 2 tíma á dag og skoða tölvuna heima í svona 3, sem þýðir þá að það eru rétt tæpir 6 dagar til jóla...þar sem maður eyðir þetta um 1 klst á dag í að borða og því tengt þá eru bara rétt um 5 dagar eftir........sem þýðir gott fólk að það er best að fara að drífa sig í að gera það sem maður þarf að gera því 5 dagar eru ansi lítið fyrir undirbúning á eins flottri hátíð og jólin eru....

Farinn í WB...

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

Síða dagsins...www.Gizmo.com ....Enjoy!

Verið svo stillt..
By the way, endilega kíkið á www.jonthor.com , kallinn búinn að uppfæra síðuna og alles...
Vá, 50 dagar síðan ég skrifaði hér síðast, það er aldeilis getuleysið í manni, en núna þar sem félagi minn segir mér að skrifa svo ég hætti að vera bældiskúli þá here I am...Það verður erfitt að koma the mumbling machine aftur í gangi, en ég skal svo sannalega reyna.

Jæja hvað hefur gerst fyrir oss á þessum langa tíma, jú það er sko aldeilis hellingur, maður er búinn að incrementa ártöluna um 1, búinn að finna ánægjuna í vinnunni aftur...JEEEE RÆT....búinn að taka þátt í sundpólói, sem by they way er geggjað sport ef það væri ekki fyrir það að æfingarnar eru klukkan fikkins 9:30 á kvöldin, hver æfir klukkan 9:30 á kvöldin, maður er nýkominn heim úr vinnu, búinn að fá sér þægilegan kvöldverð, vippa sér í linu bláu jogging buxurnar síðan 1985, búinn að finna bestu mögulegu stellinguna ofaní dældinni á sófanum og "DING DONG" klukkan slær 9:15 og mar verður að drulla sér á æfingu, ef þetta er ekki S & M þá veit ég e kki hvað, píííning dauðans...já hee, best að tala meir um hvað hefur borið á daga mína. Ein besta vinkona mín var að skíra litla krílið sitt, sem er kúl, annar vinur minn var "knocking up" sína frú þannig að pretty much eru allir í kringum mig í framleiðslu á litlum síöskrandi sjálfvökvandi öklanögurum. Ég held að þetta sé pretty much it sem hefur gerst síðan síðast..hmmm

Hvað er framundan, já það eru sko miklar pælingar í gangi þessa daganna, hvað skal gerast á nýju ári. Þar sem vinnan er beint ekki að gera sig þá eru menn mikið að spá í ruglaða hluti eins og skóla aftur, aðra vinnu, skóla erlendis aftur, aðra vinnu erlendis, gerast listamaður, pólítíkus eða atvinnuleysingi. Það er sko ýmislegt á boðstólnum og verður eytt verulegum tíma í svona pælingar. Svo er auðvitað mál málanna, kemst maður til frakklands í feb, það verður sko fróðlegt að sjá. En það verður sko sannalega reynt...

Jæja best að fara að búa til nokkrar SQL queries fyrir matinn þannig að ég bið ykkur vel að lifa þangað til...og plís commentið eitthvað svo ég viti að there is someone out there....