Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

miðvikudagur, júní 30, 2004

T-2 DAGAR Í HELGINA...
Dagarnir líða núna eins og ef einhver hefur ýtt á fastforward takkann og maður er ekki fyrr kominn til vinnu að maður er að fara úr vinnu..sem er alls ekki slæmt. Veðurspáin fyrir helgina er alltaf að komast meira á rétt ról, mér sýnist á öllu að vesturland verði þurrast, skýjað en hlýtt, húsafell, borganesið eða eitthvað á því svæði er því feitur kandídat fyrir eina góða tjaldferð. Hvort við förum á fös eða lau er svo önnur saga og það verður ekkert spáð í það fyrr en á föstudag. Í þessum skrifuðu orðum situr nágranni minn hér í vinnunni, heldur í símann og horfir stíft á hann og talar við manninn í símanum gegnum speakerphone, hann er meira að segja að eiginlega hvísla núna svo ég heyri ekki mikið hvað þeirra fer á milli..."AFHVERJU NOTARÐU EKKI HELVÍTIS SÍMTÓLIÐ EINS OG ALLIR AÐRIR TREGI KALL" væri ekki best að garga þetta núna, láta hann fá vægt áfall og sjá hvort þetta muni breyta nokkru í framtíðinni, en eins og ég hef sagt áður þá finnst mér fátt fáránlegra en menn sem tala í speakerphone, allt í lagi ef það eru svona fundir í gegnum síma og fleiri þurfa að hlusta, eða þá að þú sért handalaus eða fitusjúklingur og nærð ekki í símann, en yfir höfuð á fólk að taka helvítis tólið upp og tala í símann eins venjulegt fólk og hananú.

Topp 5 of my annoying habbits
1.Kaldhæðni
2.Stríðni
3.Nefborun
4.Leti
5.Prump

þriðjudagur, júní 29, 2004

T-3 DAGAR í helgina...
Allt að gerast sko, aaaallt að gerast, spáin aðeins búin að breytast, nú verður bara þokkalegt veður um allt land með einstaka skúrum, upp í 17 stiga hita..spennó. Dagurinn mest búinn að fara í böggandi bögg frá böggliðinu hér í vinnunni, en helgin er að nálgast og því kætist maður alveg ósjálfrátt. Úff hvað það verður gaman...þó svo það verði haglél og 50 m/s vindur á öllu landinu þá verður stuð næstu helgi..þó ég verði einn með pilsner og prins póló næstu helgi þá verður sko stuuuuuuuð..eh he he..eh...já hmmhmm.
Jóntz og Gunntz hafa reporterað inn reglulega, og af þeim samtölum að dæma verða þau lögð in á Lu SÁÁ í Frakklandi þegar þar að kemur, sem sé í góðu glensi á Cannes í 30 stigum og sól.
Kritz kallinn ætlar í verkfall í þessari viku gegn veðurguðunum, en sól hefur ekki sést í danaveldi í á 4.viku, ætlar hann að hóta landflutningum í næstu viku ef veðrið fer ekki að batna.
Ace ætlar á námskeið hjá símanum í komandi viku, þar verður kennt almenn símanotkun, eins og að svara og þekkja hljóðið þegar sími hringir, námskeiðið er krafa frá stjórnvöldum en símasvörun ace hefur dregið meðatal á landsvísu niður um 2/3.
Gullz, Macy, Addí og Hanni hafa gengið í kirkju hins heilaga Björgólfs undir merkjum Eimskips og hafa því gefið söfnuðinum allan sinn tíma, vakandi eða sofandi, næstu 30 árin. Aðspurð þá fannst þeim þetta bara allt í lagi þar sem "að eiga líf" er víst komið úr tísku.
Stebbz sást síðast á Snæfellsn...ég meina Suðurne...meina Blönd..úff. Stebbz sást síðast á Íslandi, fuglaskoðarar og aðrir merkingamenn, vinsamlegast tilkynnið ef það sést í hann Stebbz og merkið ef mögulegt, það er með fádæmum fágætt að sjá þennan furðufugl staldra við á sama stað í meira en 5 mínútur.
Farfuglinn Fannsa sást síðast á skrifstofum flugleiða í miklu rifrildi, en stjórnendur Flugleiða neita að samþykkja að breyta hámarksfarangri farþega úr 1 tösku í 15 þann dag sem hún flýgur til Spánar, þó svo að 4 þeirra séu íþróttatöskur.
Áza og Einzi munu líklegast fara á bleiku þrumunni norður í land næstu helgi til að kanna aðstæður búskaps þar nyrðra. Hafa þau "hjóna"kornin spáð í að reyna að rækta peningatré fyrir Seðlabanka Íslands en slíkur búskapur fellur undir landbúnaðarráðið og því má búast við svona um 400- 500 milljón króna fjárveitingu frá ríkinu í þetta verkefni.
Rósa og Eyvi hafa ekki sést síðan á giftingu, vegfarendur eru beðnir um að tilkynna til vina ef eitthvað sést í þau.
Benji...nú Benji, hann rokkar!

mánudagur, júní 28, 2004

T-4 DAGAR í helgina...JEEEE
Nú er maður orðinn eins og krakki að bíða eftir jólunum. Maður hefur ekki snert bjórinn í núna á þriðju viku og þorstinn er farinn að segja til sín, en honum verður einmitt svalað um komandi helgi. Veðurspá næstu helgar er komin á netið, skýjað N- V- lands en rigning S- A- lands, verður fróðlegt hversu stór breyting verður á þessari spá, já krakkar mér finnst jafnvel veðurspáin spennandi þessa daganna, jeeeeiij hvað ég hlakka til. Frakkinn og frú eru nú í Cannes, flatmagandi í sólinni, með sangríu í hægri og sólaráburð í vinstri, maður öfundar þau ekkert því ÉG FÆ AÐ DREKKA BJÓR UM HELGINA..jjeeeee.
Plönin um næstu helgi munu ráðast algjörlega af veðri, en eitt er víst að ölið verður með í för, jafnvel blautgallarnir og brettin, svona bara ef vera skyldi að maður sæi öldur eða tvær. Ég, ace og macy erum nokkuð örugg með að fara eitthvað, eigum bara eftir að sjá hvenær og hvert. Þið hin, látið vita ef þið viljið koma með.

Topp 5 tjaldferðardrykkir
1. Bjór
2. Kapteinn í kók
3. Brennivín í vatni
4. Gin og greip
5. Andrés

Farinn að blanda landa....

föstudagur, júní 25, 2004

Iðnaðarmenn..
Afhverju í ósköpunum líta svona margir iðnaðarmenn illa út, ég meina það er allt crawling af iðnaðarmönnum hér hjá okkur þessa daganna, málarar, píparar, suðumenn, smiðir og rafvirkjar og svona 70% af þeim líta út eins og þeir hafi sofið í ræsinu í nótt. Reyndar er svona svolítið iðngreinaskipt útlitið..let me explain. Málararnir eru flestir svona eins og þeir hafi á sýrudiskói í svona 15 ár, grannir, með bauga og fölir, pípararnir eru flestir belgmiklir og haugdrullugir, suðumennirnir eru tannlausir skítugir og feitir, smiðirnir belgmiklir og svo rafvirkjarnir eins og þeir hafi legið í straumi í marga mánuði. Mér finnst þetta alveg magnað, reyndar eru smiðirnir og rafvirkjarnir oftar en ekki eðlilegastir en hinir eru nánast bara freaks. Eru iðnaðarmenn stökkbreytingar, eru gen þeirra önnur, er eitthvað ráðandi í móðurkvið sem lætur þá verða svona, hvað er málið?

Farinn að stara...

fimmtudagur, júní 24, 2004

Stuð..
Þessi vika er búin að líða svo innilega hratt að það er ekki fyndið. En maður getur svosem ekki kvartað þar sem maður hefur varla setið hálfa mínútu kyrr. Það er búið að labba Úlfarsfellið og nágrenni, æfa, golfmót, vinna, sundlaugarferðir, bæjarrölt, pubbarölt og meira og meira, algjörlega brill vika, nema hvað að mr sun ákvað að taka sér pásu núna og þá er bara ekki nærri því eins gaman, alveg magnað hversu miklu það skiptir að sólin sé skínandi á mann. Svo er verið að plana næstu helgar á fullu, næsta helgi chill/vinna helgi, næstnæsta helgi tjaldferð (ég tek við þátttökutilkynningum fyrir hana), næstnæstnæsta helgi sörf/bústaður/hestaferð(vonandi), næstnæstnæstnæasta helgi Vestfirðir, næstnæstnæstnæstnæstnæsta helgi Akureyri(vonandi), næstnæstnæstnæstnæstnæstnæsta helgi París (vonandi) usw..

Svo er svona spurning til ykkar, hvernig lítur ykkar laminated list út?
Minn er:
1. Halle Berry
2. Kristin Kreuk
3. Salma Hayek
4. Tyra Banks
5. Heidi Klum

Reyndar breytist þessi listi svona með dögunum, en í dag er þetta minn listi..hver er þinn?

Farinn að flokka bréfaklemmur...

mánudagur, júní 21, 2004

Sumardagur back in the days!
Ég var spenntur, þarna stóð ég ásamt hinum 10 félögunum í röð inn í þessum litla búningsklefa með aðeins einn lítinn glugga í suðri og gat í veggnum yfir til stelpnanna, mér fannst röðin ganga alveg óhemju hægt, hvernig ætli þau líti út, ætli þau hafi margar vörtur eins og Kalli hafði sagt í rútunni. Loksins var komið að mér að kíkja, ég skalf næstum því af spenningi. Gatið var svona þægilega stórt, alveg upp við bakvegginn, við snagana, ég gægðist varlega. Ég sá þarna hreyfingu, það var einhver að fara úr bolnum, hjartað sló örar og örar, myndi ég sjá eitthvað, þarna kom nærskyrtan á snagann, þetta yrði í fyrsta skipti sem ég myndi sjá þau. Ég reyndi að troða auganu eins þétt upp að gatinu og ég mögulega gat...og þarna...þarna voru þau í allri sinni dýrð..ég brosti út í annað, markmiði ferðarinnar var náð. Ég rétti úr mér og færði mig frá gatinu, labbaði sáttur að hinum strákunu, með sólskinsbrosi kinkaði ég kolli til hinna, já ég var orðinn einn af þeim núna, við vorum orðnir karlmenn!

miðvikudagur, júní 16, 2004

Veðurfar!
Merkilegt er hvernig sumir hafa áhrif á sitt umhverfi, til að mynda frakkinn, jú sko þannig er það nú að þegar við vorum í köben, þá sást ekki til sólar fyrr en frakkinn flaug heim og nú, daginn eftir að frakkinn fór er barasta þurrt og logn og hlýtt og ekkert nema sól í kortunum, annað en þessa 4 daga sem hann var hérna, er þetta tilviljun eða er eitthvað til í þessu. Skoðum þetta aðeins betur, frakkinn vinnur hjá CEA í frakklandi, sem er svona kjarnorkuráðblabla þar eystra, vinnur sem sé þar sem verið er að umgangast plútóníum og mikla háspennu og allskonar efni, er ekki möguleiki á að frakkinn sé bara orðinn geislavirkur/rafmagnaður/efnasýktur að rakaþéttnin er hvað hæst nálægt honum, og því fylgja honum ský og rok og rigning hvert sem hann fer, nema auðvitað í Frakklandi, jújú allir vita að - og - gerir + og því hljóta allir hinir geislavirku/rafmögnuðu/efnasýktu frakkarnir að mynda svona hjúp saman og því skín sólin þar...hvað haldið þið?

Farinn að sóla belginn

sunnudagur, júní 13, 2004

Bústaðarbröltið!
Í gær var bústaðarferð hjá okkur sekkjunum og var eldað alveg dýrindis mat með tilheyrandi veigum og sælgæti í eftirrétt. Var hópurinn vel stemmdur og í góðum gír og sá frakkinn(lu johnz) sér fært til að mæta eftir að hafa verið að sýna frakkavinum sínum hvernig íslensk lambasteik er kjömsuð í perlunni. Var mikið sungið, nokkrir trúnóar, spilað water golf og spilað þarna turnakubbaleikinn. Sem sé overall alveg brilliant ferð. Addí og co, þið rokkið!
Svo í dag sunnudag var skellt sér í afmæli hjá lítilli frænku minni, það er nú ekki beint frétt til næsta bæjar nema hvað að mér finnst alveg magnað að sjá hversu stór dagur þetta er fyrir svona litla krakka, pakkarnir, gestirnir, nammið, kökurnar, pylsurnar. Litla frænka sat bara í svona hálfgerðum móka inn á milli þess sem hún tók eitt og eitt sykursjokkhlaupíhringiogöskrakast. Ein mamman var að rembast í góðan hálftíma við að reyna að deila einu svona segulteiknidóti milli tveggja stráka high on sugar, ég sá hvernig æðarnar spruttu fram í andliti hennar í þessum átökum, reynandi að vera kurteis og góð móðir, dótið endaði svo loks upp á ískáp he he he ég hló. Aðrir foreldra voru reglulega að leita eftir krökkunum sínum, út á svölum, inn í skápum, upp á efri hæðum, ég fílaði mig mjög vel vitandi að ég hafði engan öklabítara til að hafa áhyggjur af, sat bara með brauðtertuna mín, stórt kókglas, afslappaður í sófanum og horfði á þennan sirkus spilast út.

Jæja, farinn að gera eitthvað skemmtó..

föstudagur, júní 11, 2004

Helgin komin!!!
Jæja krakkar nú loksins er helgin komin sko, veðrið orðið brill, flestir í vinnunni minni farnir út á golfvöll (golfmót fyrirtækisins í gangi) og maður situr hér í makindum með klaka og kók lesandi blaður á netinu. Vikan sem senn er á enda komin er búin að fljúga hratt áfram, mikið búið að vera í gangi í vinnunni og svo hafa kvöldin flest verið nýtt í ýmislegt gáfulegt og því má segja að nýtnisstuðullinn hafi verið hár á liðnum dögum, en vænta má að hann verði enn betri þegar vikan er öll á enda komin þar sem the day of the week er á morgun. Jú á morgun kemur frakkajón fljúgandi frá frakklandi í fylgd furðulegra frakka og fylgdarliðs, fyndin frásögn frá frakkajóni fylgir forsjálega fyrir forvitna furðuvini frá freðinni fjallaeyju furðulangt frá frakklandi...þýðing: það verður djammað með jóntz á morgun og hann verður fyndinn.
Svo þarf að minna mig á að skrifa fyndna frásögn við tækifæri, er bara of upptekinn að lesa um giftingu J.L og M.A. til að meika að pikka það í dag..jee..u go girl..

Partígengi, pís át hitti ykkur á morgun, hinir, hafið góða letihelgi...

þriðjudagur, júní 08, 2004

Howdy all!
Úff hvað maður er andlaus í dag, gæti það verið vegna þess að súrefnisflæðið um skristofu mína er 0.0 samanblandað við vindlamökkinn sem smýgur undan dyrum forstjórans, eða þá að hitastigið er 35 stig við borðið mitt, jafnvel gæti andleysan verið vegna þess að sólin skín í gegnum glerþakið beint framan í mig og ég er búinn að vera að píra augun síðan 11 í morgun. En allaveganna andinn er ekki beint yfir mér í dag og því verður þetta innihaldlausasta blogg fyrr eða síðar. Benji án orða, það gerist sko ekki oft, eiginlega aldrei, maður er síbullandi vitleysingur og því eiginlega þekki ég sjálfan mig ekki í dag...hver er þessi maður sem pikkar svona létt á lyklana, sveittur og illa lyktandi með pírð augu....ekki getur það verið hann Benji..neeeeih.
Í dag kom maður í atvinnuviðtal, ég mætti honum á leið minni upp stigann, hann var að bíða eftir að starfsmannastjórinn kæmi og tæki á móti honum, gaurinn stóð þarna í því sem virtist sömu fötunum og mamma hans gaf honum 1991, ég leit framan í hann og um leið leituðu augu hans flóttarlega eitthvert annað...ég giska að hann fái ekki vinnu hér...veðja 1 bjór.


Allaveganna ég er farinn að sjúga smá súrefni...

föstudagur, júní 04, 2004

Sól sól skín á mig..
Jeee það er sko Spánarveður hér á skerinu í dag og sé ég fram á að það verði slatta af "fundum" út í bæ í dag. Já ætli þeir verði ekki eins og 3 eða jafnvel 4, hver um sig..tjaaaa 1 klst. Reyndar er alveg óvenju fámennt hér í vinnunni í dag, held að fleiri hafi farið á svona "fundi" í dag. Á svona degi er regla númer 1, ekki bíða of lengi með að fara á þessa "fundi" því að því lengur sem þú bíður því meiri hætta er á að það verði of fámennt hér innandyra og því komistu ekki vegna anna. Regla 2 er að koma á svona klukkutíma fresti til baka upp í vinnu og kíkja bara svona örstutt áður en þú rýkur aftur út mumblandi um einhvern fund. Regla 3: ekki fara á neina stóra almenningsstaði eins og Kringluna eða Laugardagslaugina, frekar Spöngina eða Mosfellsbæjarlaugin, því að það er stór hætta á að hitta einhvern úr vinnunni á hinum stöðunum og ef þeir eru yfirmenn þá ertu í djúpum sk.. Regla 4: Ekki koma brosandi aftur til vinnu og ALLS EKKI koma með neinar veigar eins og ís eða candy floss, það er dead give away um að þú hafir verið að skemmta þér.

jæja farinn að funda...

fimmtudagur, júní 03, 2004

Hass lækkað í verði!
Brilliant fréttir hafa verið að koma í fréttamiðlana hér á skerinu síðustu daga, Hass hefur lækkað í verði, þetta hefur held ég komið fram í öllum fjölmiðlum á netinu, alveg magnað að vera að auglýsa lækkun verðs á hassi, finnst ykkur þetta frétt? Hvernig er það þá á ekki að fara að láta okkur hvað söluverðið sé á kornabörnum þessa daganna, eða jafnvel hvað kílóverðið á mannshjörtum sé í dag...Nú þegar Óli kallinn er búinn að setja akkeri á Dabba kallinn og spennublaðran sprungin varðandi það að þá bara skvetta fjölmiðlar heimskulegum fretfréttum framan í okkur sem nenna að reyna að fylgjast með. Önnur frétt í ágætum skeinipappír var að ælupest barst frá Akureyrinni til Húsafells, ég sá fréttina, ég gapti, gat ekki hætt að lesa, og hvað gerðist fyrir allt fólkið, urðu allir veikir, hvað var til bóta, urðu einhver dýr fyrir barðinu á þessari skæðu farsótt....baaaah. Allaveganna þá held ég að ég taki mér svona 2 vikur í pásu frá að lesa fjölmiðlana því mér sýnist þeir eigi ekkert nema fjölskyldufréttir fréttamanna eftir, "Siggi litli kúkaði 2svar í nótt og ældi einu sinni..."

Farinn að horfa á stillimyndina...

þriðjudagur, júní 01, 2004

Back to the Rock!
Jæja þá er maður kominn heim á ný eftir vel heppnaða ferð til baunalandsins í austri. Ferðin var í alla staði mögnuð og þakka ég Kritz fyrir redda okkur húsaskjóli, ví salút jú. Ferðin samanstóð gróflega af Öl drykkju, Metallicatónleikum, Strik rölti, Tívolíi, Erotic Museum, Wax Museum, Dýragarði, Lestarferðum, Taxiferðum, Doyer HabenDoyer, Öl Drykkja, Gítarspili, Pakki, Mús bar, Ruste, Hereford Bistro, Hamborgurum, Pylsum, Hrotum dauðans, Bíói, Ráðhústorgi, Nyhavn, Pass Pa Hovedet, Bátasyglingu, Fishermans friend staupum, Vladimir, English Bar og margt margt meir.
Sólin lék ekki mikið við okkur þarna úti og því er eini hluturinn sem breytti eitthvað um lit líklegast lifrin mín en ákveðið hefur verið að hún fái nú ágætis pásu næstu daga.

Næst á dagskránni er brúðkaupið næstu helgi, jeee, var búið að versla pakka?