I did it again...
Þreyttur og pirraður eftir leiðinlegan vinnudag þá var ljúft að renna í hlaðið hjðá gymminu vitandi það að nú yrði sko tekið á því og náð þessum pirringi út. Heilsaði dömunum í afgreiðslunni með nettu "how you doin" og brosi. Rölti svo inn í búningsherbergi og fór að græja mig, svitaband..legghlífar, naflabolur...eða kannski ekki...allaveganna þá skellti ég mér í mitt gym outfit...derhúfan svo á og eitthvað í eyrað til að hlusta á...perfect. Þegar ég var svo við að labba út úr búningsherberginu þá fann ég fyrir því að jú ég þyrfti helst að létta á mér, nett U -beygja tekin og brunað að baðherberginu. "Hmm skrítið lokað inn á bað.." hugsaði ég í sömu andrá og ég opnaði hurðina. Nú baðherbergið í karlaklefanum í þessu ágæta gymmi samanstendur af pissuskál og svo klósett sem er svona semi skermt af. Allaveganna ég skelli mér að pissuskálinni og stilli mér upp til að hefja losun. Starandi á vegginn og hugsandi um hversu rosalega ég ætla að rústa stigvélinni og lyfta rosalega í bekk þá fór ég að heyra óskemmtilegt hljóð..svona eins og ég væri ekki að hitta ofaní skálina. Ég lít niður og sér það mér til mikillar skelfingar að einhver snillingur hefur náð að brjóta neðri hluta skálarinnar þannig að allt sem fór ofaní hana fór beinustu leið á vegginn og þar niður á gólfið, sem by the way var einn hafsjór af pissi og klósettpappír (greinilega að einhver hafi verið að reyna að bjarga málunum með eins og 4 rúllum af klósettpappír). Ég tók svona nett "iiiiijjjjjúúú" kast og hætti að pissa og bakkaði frá skálinni, rann svo til í hlandbleytunni, hrasaði um klósettpappír og datt aftur fyrir mig, bar hendurnar fyrir mig og fann hvernig þær splössuðust ofaní hlandsjóinn, tilhugsunin að ég væri covered í hlandi á höndunum úr svona 15 karlmönnunum fékk mig til að kippa höndunum að mér og því án þess að hafa hugsað þetta lengra sat ég nú þarna í miðjum hlandsjónum. Þegar ég loksins komst svo aftur á fætur eftir mikið basl, þá var má segja meiri hlutinn af mér covered í vafasömu vatni, fötin öll blaut og ég eldrauður í framan, meira að segja derhúfan slapp ekki. Ég opnaði hurðina varlega fram í búningsherbergið og mér til mikillar ánægju var enginn þar inni svo ég vippaði mér snöggt að snaganum mínum. Sjaldan hefur ein manneskja verið jafn fljót að koma sér inn í sturtu í öllum fötunum og ég þennan dag. Með aðstoð 5 L af sápu 1000 L af vatni og þrem gufum þá náði ég að ég held að sótthreinsa mig from top to bottom. Ég fór ekki í þetta gym í 1 mánuð eftir þetta...
En allaveganna hafið góða helgi gott fólk og munið að horfa niður áður en þið látið gossa.