Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Jólaundirbúningurinn hafinn...
Loksins hefur Baggalútur gefið út jólalag 2004 og þýðir það þá að maður getur farið að baka piparkökurnar, strauja jólabindið og þurrka rykið af plasttrénu. Gjörið svo vel, jólalag Baggalútarmanna..


mánudagur, nóvember 29, 2004

Helgin ljúfa liðin er nú...
Jæja nú er maður mættur til vinnu eftir ágætis helgi, sem var full af eintómri gleði. Föstudagurinn fór í óvænt Samskipsdjamm sem endaði frekar snemma en enga síður var ljúft. Laugardagurinn svo tiny teiti hjá Adda Sig og svo var farið á Queen coverband tónleika, sem voru hreint út sagt gargandi snilld. Sunnudagurinn svo frekar myglaður, sófinn fullnýttur sem og rúmið. Vikan virðist ætla að vera nokkuð ljúf, á morgun golfæfing með golfklúbbi Geirmundar (ég, ásgeir, gunni og hannes). En nóg um það, og svona til að starta þessari viku koma hér nokkrar "staðreyndir" sem ég náði af síðu einni, ég íslenska ekki þannig að þið sem skiljið ekki, vinsamlegast snúið ykkur að næsta grunnskóla og endurtakið 10 ára bekkinn.

Strange Facts
  • The Nobel Peace Prize medal depicts three naked men with their hands on each other's shoulders!
  • Almost half the newspapers in the world are published in the United States and Canada!
  • Skepticisms is the longest english word that alternates hands when typing!
  • It's illegal to drink beer out of a bucket while you're sitting on a curb in St. Louis!
  • No piece of square dry paper can be folded more than 7 times in half!
  • Over 2500 left handed people a year are killed from using products made for right handed people!
  • Clinophobia is the fear of beds!
  • A 'jiffy' is an actual unit of time for 1/100th of a second!
  • The longest recorded flight of a chicken is 13 seconds!
  • you're born with 300 bones, but when you get to be an adult, you only have 206!
  • In Natoma, Kansas, it's illegal to throw knives at men wearing striped suits

Jæja nóg af mumbli í bili...kaffið kallar...

föstudagur, nóvember 26, 2004

Jólaglögg...
Þar sem 1. í aðventu er framundan þá sendi ég ykkur mjög góða uppskrift af jólaglöggi fyrir ykkur siðprúða fólkið.

1 LITER VODKA (SMIRNOFF ER MJÖG GÓÐUR Í ÞESSA UPPSKRIFT)
1 STK RÚSINA
ALLT HRÆRT VEL SAMAN OG SKREYTT MEÐ GRENI
( mjög gott er að drekka þetta með stóru röri svo hægt sé að sjúga rúsínuna upp í munninn ÞAÐ GERIR GÆFUMUNIN Í ÞESSARI UPPSKRIFT)

Eigið góða helgi...

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Stressandi líf...
Ég verð nú að segja að síðustu dagar þrátt fyrir að hafa verið fjölbreyttir og interesant (alltaf að læra eitthvað nýtt á þetta líf) að þá hafa þeir verið svolítið stressandi, vinnan aldrei þessu vant hefur verið krefjandi, mikið að gerast og allt sem á að hafa gerst í gær eða fyrr, jafnhliða þessu þá eins og landinn veit hef ég verið að rembast við að leita eftir kofa og hefur það gengið misvel, íbúðir lélegar, misst af íbúðum, vantar hitt og þetta...svona overall hefur maður verið að stressast yfir öllum fjáranum og eiginlega er það ólíkt mér en svona er þetta.
Hvað annars hefur verið að gerast í kringum mann, allir að plana jólaundirbúninginn, þá aðallega drykkju/djamm hlutann, addí upptekin við að vera ófrísk, ásgeir að meika það í tónlistinni, ég í íbúðarbraski, kristján að deyja úr dönsku og láta sig dreyma um ameríska gyðju, jón að endurskrifa endurskriftir, gunna að brillera í skólanum, gulla að stýra eimskipspakki, fanney að fá sér harðsperrur, stebbi upp á fjöllum, ásgerður að hjúkkast, tinna að brenna í ljósum og svona mætti lengi vel telja upp...allir svona pretty much bara í góðum gír.

föstudagur, nóvember 19, 2004

Random rugl...
Pistill dagsins byrjar á smá linki yfir á ágætis grein sem ég rakst á í dag og er hér. Þessi grein fær mig til að brosa, hún er skrifuð á feministaspjallrás og er greinilegt að það er lítið sem fer framhjá þessum ágætu stelpum (og örfáu strákum) sem halda þessari síðu uppi. Mjög gott að fólk fái útrás fyrir því sem bjagar það á svona síðu...en allaveganna nóg um það. Í dag ætlaði ég að vera málefnalegur, ræða um einhver af heitustu málefnum líðandi stundar og koma með eitthvað greinagott álit mitt á þeim, nema hvað ég er búinn að lesa yfir moggann, vísi, cnn og ég veit ekki hvað og hef komist að þeirri niðurstöðu að ég kann ekki að vera málefnalegur um málefnaleg mál(svona eins og kollegar mínir séra Jón og séra Kristján ) og því hef ég tekið þá ákvörðun að vera það ekki. Þannig að í dag verður fjallað um eitthvað sem engu máli skiptir og öllum er sama um.
Naflakusk, Naflakusk er fyrirbæri sem ég skil engan veginn í hvað er, eða hver tilgangur þess sé eða hvaðan það kemur. Eftir langan vinnudag og ágætis æfingu(í spandex gallanum) þá fer maður í sturtu(í speedo skýlunni) og hvað sér maður í naflanum annað en svona .5 kg af ló og drasli sem maður veit ekkert hvaðan kemur. Framleiðir naflinn þetta? Eru fötin manns svona í miklum henglum að þau molni ofaní þessa líkamsholu? Fá allir jafn mikið naflakusk eða eru sumir líklegri en aðrir að safna? Rannsókn var gerð á þessu fyrir einhverjum árum þar sem ágætur rannsóknarmaður eyddi einhverjum árum í að rannsaka nafla á einhverjum fjölda fólks og held ég að engin niðurstaða hafi komið úr því. Ef einhver veit eitthvað um þetta og vill deila því með okkur, ekki gera það, það segir okkur þá bara hversu eymdarlegu lífi þú hlýtur að lifa þar sem þú veist skýringu á jafn aulalegri ráðgátu og þessari.

Britzinn kveður....

PS
Góða Jólaöls helgi y´all

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

And the heat is on...
Nú er aldeilis komin pressa á kallinn, eftir að hann fór að kvarta í nokkrum einstaklingum að þeir væru aldrei að lesa bullið sem póstast hér á þessari síðu þá komu þau mótsvör að ég hefði verið latur að blogga, kannski einu sinni til tvisvar í viku, þetta er jú rétt, svona VAR þetta en hefur ekki verið í smá tíma og kallinn bara búinn að vera duglegur að ausa upp úr viskubrunninum og pósta allt og ekkert á þessa síðu. Nema hvað nú er fólk farið að ætlast til þess að maður pósti eitthvað hér á hverjum degi, nema um helgar, ef það á að vera að lesa þetta bull á annað borð og þetta er því barasta orðin þvílík pressa á að kallinn standi sig og verður maður að að fara semja drög um helgar að efni næstu viku, dagskrágerð og allt hvað það nú heitir. En svona er frægðin, hún krefst meiri tíma til þess eins að halda aðdáendum sínum ánægðum. En kallinn mun standa sig, blogga á hverjum virku degi alveg þangað til að hann nennir því ekki.

Jæja, eitthvað vitrænt blogg mætir hér á morgun...

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Draumastarfið..eða hvað??
Margir vinna við starf sem þeir eru ekki alveg 100% á því að þeim líki við. Því er mikilvægt að maður spyrji sjálfan sig nokkurra spurninga áður en maður festist í þessu starfi og vakni eftir 20 ár, gamall, þreyttur og grumpí.
1. Vaknar þú fersk(ur) og full(ur) af tilhlökkun til dagsins í vinnunni?
2. Eyðir þú meir en 50% af deginum á netinu að blogga eða "sörfa" netið?
3. Gnístir þú tönnum og finnur hvar hárin rísa þegar hringt er úr innanhússsíma í þig?
4. Starar þú á klukkuna frá 20 mín í 12 til 12 og svo aftur frá 20 mín í 5 til 5?
5. Drekkur þú 20 kaffibolla á dag bara svo þú hafir afsökun til að fara fram í kaffistofu?
6. Er 80% af flettingum á www.mbl.is af þínum völdum?
7. Er verkefnalistinn yfir það sem þú ætlar að gera eftir vinnu lengri en sá sem er fyrir vinnudaginn?
8. Sígur þú ofan í gólfið í hvert skipti sem þú sérð yfirmann halda á miklum pappírum og vera gangandi í þína átt?
9. Vaknar þú á morgnanna vonandi að þú sért veik(ur) eða finnur hvernig hugsanlega mögulega hálsinn gæti hugsanlega mögulega bólgnað upp í dag vegna hugsanlega mögulegra möguleika?
10. Minnkaði "vinnuálagið" um helming þegar það var lokað fyrir msnið?

Ef þú svarar fleiri en einni spurningu(fyrir utan númer 1) að ofan játandi þá er samkoma félagsmanna "fólksemfílarekkisittdjobb" næstkomandi sunnudag í félagsheimili aldraðra í Tréketilsvík og við væntum þess að þú látir sjá þig!

Farinn að flétta naflahárin...

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Jeff who tilkynning...
Jeff Who? verður að spila á Klink og Bank (Þar sem Japis var til húsa dt) á morgun miðvikudag kl 20:00, allar grúpppíur mæti 15 mín fyrir. Elvis kveður..

mánudagur, nóvember 15, 2004

Ísland...best í heimi!...
Gærdagurinn, var vel myglaður, eins og allir sunnudagar eiga að vera, það var vaknað, slafrað í sig banana og svo brunað út í neyðarútkall, Addi var einn heima með litla krílið þannig að þetta var code blue, buddy needed with dvd and a pizza. Svo þarna láum við í góða 6 tíma, reynandi að svæfa krílið hans Adda, jöppluðum á pizzu og horfðum á 2 myndir, myglaðir í sitthvoru sófahorninu með dömuna litlu á milli okkar sjúgandi brauðstöng og sá ég alveg að þetta yrði dagurinn í hnotskurn...neeema hvað. Eftir að hafa borðað kvöldmat, gengið frá, horft á fréttir og tekið smá til þá bara allt í einu heyrði ég hvað norðan rokið var hætt út, ég leit út og þarna var þessi yndislega logndrífa, algjört logn í götunni og ekki sála á reiki. Ég gat ekki annað en drifið mig út, ég setti trefil, húfu og vettlinga á, vippaði mér í gönguskónna og stökk út eins og einhver sem aldrei hefur séð snjó áður. Snjórinn var geggjaður, ég labbaði í smá tíma, brosandi eins og einhver illi, alveg að fíla mig í þessu veðri. Síðan þegar tærnar voru orðnar ískaldar og nebbinn horfrosinn þá dreif ég mig inn og Swiss Miss og kleina var á boðstólnum og japplað fyrir framan 007. Á hverju ári kemur það fyrir mig þegar veðrið var eins og það var í gær að maður verður ósjálfrátt happy (ekki það að ég hafi verið grömpí) og manni líður vel og öll vandamál heyra sögunni til og maður veit afhverju auglýsingin segir "Ísland..best í heimi".

föstudagur, nóvember 12, 2004

Heilsuátakið "Bumban inn" has started....TATATATAMMM...
Jæja nú verður maður að fara að taka sig á, fór í mælingu í vikunni, fékk skýrsluna á miðvikudag og samkvæmt henni er ég of þungur, of feitur og í bráðri hættu á fitutengdum sjúkdómum. Töframaðurinn sem mældi mig náði þessum upplýsingum einungis með að klípa í vömbina, mæla mittið og vigta...sannkölluð töfrabrögð verð ég nú að segja en þetta hlýtur að vera satt þar sem maður er með einkaþjálfarapróf frá the unisversity of the woooorld. En allaveganna ég er farinn í átak, nú verður maður að fá sér diet allt, diet mat, drykki, súrefni...allt diet og svo verður æft svona 4 - 6 sinnum í viku, kynlífsstundun verður látin aukast til muna (er víst svo gott fyrir hjartað) og íhugun iðkuð til að balensera allt þetta og minnka líkur á stresssjúkdómum og heilabólgu. Á eftir fer maður og verslar vítamín, fæðubótaefni, trefjar, herbalife, boozt, spandex galla og legghlífar og í kvöld verður æft læ kreeeisí...."Eye of the tiger Britz...eye of the tiger". Kannski maður fari líka að stunda jóga, eða fari í body pump tíma jafnvel spinning, svo auðvitað ganga, hlaupa, stundum skokka eða skríða, djassballet, karate eða Aikido(hííjaa) koma líka til greina. Já og svo verð ég að versla mér eitthvað af þessum brilliant tækjum sem maður getur verið með heim og eru "all in one" þannig að maður getur nýtt sjónvarpstímann til að styrkja rassinn eða grindarbotnsvöðvana, hugsanlegt líka að versla þessi rafskautavöðvaspennandi maskínur svo maður geti líka nýtt tímann á nóttunni. Jæja þetta er orðin staðreynd kiddós, ég verð orðinn eins og Arnold Swassinaggi fyrir miðvikudag í næstu viku...

Farinn að labba upp og niður stigann með blýant á milli rasskinnana...

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Fimmtudagsbull...
...hann greip þétt um lærið, fann hveru heitt það var, húðin brún, rennilegar línur og lyktin....lyktin unaðsleg...allt var perfect. Hann renndi tungunni rólega upp lærið, safinn draup í bogadregnum línum niður það og sætur keimurinn gældi við tunguna þar sem hún færðist hægt ofar og ofar...hann stundi...það var svo langt síðan síðast, hann fann hvernig skrokkurinn iðaði allur af tilhlökkun og hann gat ekki beðið eftir að fá að narta...hann færði sig aðein frá lærinu, horfði á allt í sinni fullkomnu mynd...brosti breitt, nú var stundin runninn upp....hann beit fast í lærið og fann hvernig safinn úr því sprautaðist í allar áttir, öll skynfæri fóru á fullt, bragðið, áferðin, lyktin, snertingin... aldrei aftur skyldi hann gleyma að fara á kfc þegar hann kæmi í frí á skerið...aldrei.

Fátt annars að gerast í dag, dinner í kvöld, æfing á undan, skoða kofa einn í vesturbænum kannski ef maður hefur tíma. Minni svo fólk á að Jeff Who(bandið hans Ásgeirs) er að spila á morgun downtown, frekari upplýsingar um það þá hafið samband...

Farinn að éta purusvínasteik...ó já æ luv mæ mötuneyti...

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Útlendingar athugið...
Jæja krakkar, þá er formlega farið að spá í get together um jólin, sjá hvort það verði hægt að ná einhverjum hluta hópsins saman og gera eitthvað, hvort sem það felur í sér að þjóra öl og kveikja í prumpi eða spila á spil og sötra kakó á eftir að koma í ljós. Þið útlendingar sem mætið á skerið, þið vitið manna best hvernig ykkar dagskrá verður í grófum dráttum, best væri að þið mynduð láta okkur hin vita hvaða dagar eru big no no (vitum með aðfangadag og jóladag) og hvaða dagar koma þá annars til greina. Sjálfur verð ég eflaust að vinna talsvert yfir jólin(stúpid talningar) en annars þá á maður einhverja daga eftir af sumarfríi og því kjörið að taka þá ef maður getur planað þetta með meiri frest en 30 mín. Jæja þá eru allir komnir með heimaverkefni, fara heim, tala við ritarann, sjá hvernig dagskráin er og reporta aftur til yfirvaldsins.

Annars eru fáar aðrar pælingar í dag, maður situr bara hér pollrólegur með eðal baunakaffi, hlustandi á Sting og finnandi ástæður til að grúska á netinu :)...

Farinn að skoða fasteignasíður...

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Jóla hvað...
Hafið þið skoðað dagatalið nýlega? Ef ekki þá mæli ég ekki með því, því samkvæmt því þá eru engin jól í ár, jú sko jólin sem slík eru og verða alltaf, jesúbarnið, halelúja og allt það, en samkvæmt dagatalinu (sem ég held að sé gallað) þá fæ ég líklegast 4 klukkutíma í jólafrí þessi jólin. Sem sé frá 13:00 til 17:00 á aðfangadag. Þetta er auðvitað bara hreint út sagt skandall, haa, hvenær á maður að geta legið á meltunni, étið smákökurnar, horft á skyldumyndir jólanna, hitti vini og spilað, farið í jólapottinn, jólabústaðarferðin og hvað með jólapakkaverslun. Á maður nú á þrítugasta aldursári að fara að gerast forsjáll og byrja í nóvember að versla gjafir, engöngu vegna þess að maður mun ekki hafa neitt frí í desember? Það er algjör skandall að maður fái ekki meira frí, mér finnst að ef jólin lendi á helgi eins og í ár, þá eigi að gefa 1 -2 daga frí nontheless, bara setja þetta í lög og be done with it. Ég held ég skrifi þjóðarsálinni barasta bréf vegna þessa...vinna um jólin...baaa humbokk segi ég nú barasta...

Annars hefur kallinn verið mest rólegur svona, búinn að vera að skoða íbúðir á netinu og utan netsins like crazy, reyna að koma sér í einhvern kofa fyrir jólin, sofa í eigin íbúð fyrir 24.des..ég held það sé asskoti gott plan...hmm.

Jæja farinn að skrifa þjóðarsálinni..

mánudagur, nóvember 08, 2004

Óóóóó sóle míó....
Kallinn fór á fimmtudaginn á allsherjar eyrnakonfektstónleika út í Háskólabíó. Þar komu fram Nýdönsk ásamt Sinfóníunni, þeirri íslensku þá. Byrjaði þetta allt um klukkan 19:30 og endaði um rúmlega 22:00. Fyrri hálfleikur var eingöngu sinfónían og tók hún ýmis gömul góð klassísk létt lög sem allir hafa heyrt en enginn man hvað heita, eða allaveganna ekki ég(Bolero held ég að eitt heiti)...heita öll eitthvað 3.sinfónía mozarts í g-moll mínus. En þetta byrjaði vel og skemmtilega og starði maður þarna yfir þennan flotta hóp af frábærum tónlistarmönnum(og konum) og maður leyfði huganum að fljóta um meðal tónlistarinnar og þá fór ég allt í einu að spá í þessum tónlistarmönnum(og konum)..sko sumir voru á fullu að spila (eins og fiðlufólkið) en svo voru aðrir (td básúnumaðurinn) sem kannski skiluðu svona totalt 7 mínútum yfir allt kvöldið í spilun...ætli það sé borgað eftir mínútu spilun eða ætli allir séu á sömu launum þarna hjá þeim? Því ef allir eru að fá sama pening þarna þá er þessi básúnumaður og kallinn á "the windmachine" í besta djobbi sem finnst. Hugsaðu þér að vinna svona kannski 2 kvöld í viku og fá borgað 200k plús fyrir það og í rauninni þarftu lítið sem ekkert að æfa, básúnan hefur 3 takka og eiginlega bara 2 tónar sem kom úr þessu (búúú og BÚÚÚ) og hvort sem er eru allir aðrir svo háværir á tónleikunum að enginn myndi taka eftir því hvort það vantaði eitt búúú hér eða annað þar. Svo voru fleiri þarna góðri eins og kallinn sem slær pottalokunum saman (snerlar..hvað heitir það?), hvernig er það fer fólk í gegnum the music academy of the world til að gerast svona pottalokaskellir? Eða er þetta bara svona "jæja siggi minn, við erum búnir að sjá að þú kannt ekki á fiðlu, sökkar á trommum, getur ekki sungið og veist ekki hvað grip eru, hérna væni taktu þessi pottalok og skráðu þig í sinfóníuna.." Ætli það séu margir sem sæki um þessa stöðu hjá sinfóníunni á hverju ári?...en allaveganna þá voru þessar spurningar og fleiri sem yfirfylltu heilabúið alveg þar til stærsta spurningin poppaði upp. Til hvers er þessi gutti þarna fremst sem heldur á ofstórum tannstöngli, svona í alvöru talað, ég skil alveg að hann sé nauðsynlegur á æfingum, svona til að keyra þær áfram, peppa liðið upp, sjá til þess að láfiðlur séu ekki að yfirgnæfa sellóin og að básúnumaðurinn fái sínar 7 mínútur per gigg. En svo á tónleikum, afhverju er hann þarna, ég bara skil það ekki, ég sá ekki eina manneskju(tónlistarmann þá) horfa á hann alla tónleikana, utan við jú okkur áhorfendurna sem þurftum að horfa á afturendann á rúmlega fimmtugum manni dansandi "the chicken dance" upp á stalli. Almennt var sinfónían bara að skoða nóturnar og reyna að halda takti, en þarna var þessi maður, á fullu, sveiflandi greininni sinni og haldandi virkilega að hann skipti einhverju með útkomu tónleikanna, sem hann gerði held ég ekki...en allaveganna ég var bara svona aðeins að spá...

jæja meiri spekúleringar seinna...kaffitími

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Ferðasagan 4 hluti...
Jæja þetta verður síðasta skriftin um ferðina miklu, farinn að gleyma henni og því bara koma nokkrir punktar um þessa síðustu viku.
Mánudagurinn 11.október
Gunni kallinn búinn að pakka, all set to go og ég brunaði með honum niður á lestarstöð árla morguns, fundum flugvallarlestina og þar skildu leiðir okkar, ferðalangarnir tveir, the amigos, hvor fór í sína átt og það allt varð svo hljótt. Restin af deginum fór í svona smá bæjarskoðun en veðrið var frekar skítt og því nennti ég ekki að hanga of lengi í bænum. Ég, Jón og Gunna chilluðum upp í sófa þetta kvöld, grétum að súlan væri farin og rúmið var ansi tómlegt þessa nótt... ;-)
Þriðjudagur 12. október
Dagurinn sem my Canadian buddies áttu að mæta, en þar sem Newfoundland er algjörlega weird staður þá ákváðu veðurguðirnir að setja eins og 24 tíma hnausþykka þoku yfir St. John´s svo að ekkert gæti komið og farið. Jú jú ég auðvitað grét þetta ekkert mikið, bara smá og nýtti daginn með hjálp þvottavélarinnar að skrapa mygluskánina úr fötunum og brjóta úr naríunum...aaah hvað það var gott að fara í hrein föt...
Miðvikudagur 13.október
Afmælisdagur Tomma félaga, hringdi í hann, 4 tímar í að the yankies mættu, enskan refreshuð með Scrubs þáttum og allt preppað fyrir komu Kanada til Frakklands. Dagurinn leið hratt og var mikið gaman að endurnýja kynni við gamla vini....langar til Kanada núna að hitta fleiri sem voru með manni í skóla...en allaveganna dagurinn brill og Binni kallinn sáttur.
Fimmtudagur 14. okt - Laugardagur 16.okt
Úff París skoðuð niður í öreindir, já það var labbað um ALLT, þá meina ég ALLT, Luvre safnið 6 tímar, Effel turninn 2 tímar, Sjampselesei svona tjaaaa 8 tímar, farið með pakkinu í kringlurnar(8 tímar,mikill bjór drukkinn þar og ekkert verslað(allaveganna ég), Notre Dame (3 tímar), Moulin Rouge hverfið skoðað (3 tímar, mæli með þessu hverfi boyz ;-) ), farið í latínu hverfið að borða hruuukalega góðan mat og farið á einhvern klósettbar(þá verið að gefa það í skyn að barinn var lítill) þar sem einhver frægur sem dó drakk sinn síðasta bjór(morrison?)...aaaanywho var fín stemmning og minn fílaði sig eins og tröll inn á þeim stað, frakkinn soldið svona petite á köflum. Þessir dagar liðu hratt og held ég að allir hafi nú barasta skemmt sér konunglega.
Sunnudagur 17.okt
Jón vaknaði 5 um morguninn, pakkaði dótinu mínu í hasti og sat yfir mér með furðulegt glott þegar ég vaknaði, spenntur að geta loksins farið að henda mér út á flugvöll. "En jón vélin fer ekki fyrr en eftir 6 tíma", ég var svo dreginn á boxerunum út í bíl enn faðmandi koddann minn og skyndilega stóð ég þarna, hálfnakinn innan um þúsundir manna á Charles de Gaulle flugvellinum og var ekki með passann minn né buxur. "En Jón hvað með dótið mitt" öskraði ég á eftir honum þar sem hann brunaði spólandi í burtu og og hló eins og dvergur á spítti...hvað var nú til ráða, hvað gat ég gert, þyrfti ég að eyða næstu dögum mínum eins og hinn kallinn sem hefur búið þarna á flugvellinum í fleiri fleiri ár. Ég skimaði um og sá áfengispoka og pappakassi, vafði pokann um mig og settist á kassann, "hugsa britz huuuuugsa" sagði ég við sjálfan mig og barði í hausinn með flötum lófa...allt í einu finn ég hvar kassanum mínum er kippt undan mér og ég dett flatur á gólfið. "Nei nú er mér sko nóg boðið", ég spratt á fætur eins og fimur skógarköttur og tók sprettinn berfættur á eftir hinum kallinum sem ehfur búið þarna á flugvellinum í fleiri fleiri ár, hann stal kassanum mínum og það ætla ég sko ekki að sætta mig við. Sem betur var hann í engu formi og þrátt fyrir að vera berfættur og búinn að stíga í glerbrot og með nagandi púddluhund fastan á öklanum þá fann ég hvað ég nálgaðist hann hratt, "EKKERT skal stöðva mig í að ná kassanum mínum aftur!" öskraði ég og stökk á manninn ....þarna sat ég í rúminu mínu, klukkan var 8 og ég hafði nógan tíma til að pakka og gera mig ready. Passinn, visa kortið og buxurnar snyrtilega staðsett við hliðina á mér. Jón og Gunna komu með morgumat inn í stofu og við ræddum mikið um hversu góð ferðin hafði verið, um hvernig andlitshár, bringuhár og sportrönd hefðu fengið að fjúka af mér, hversu mikil snilld golfið hefði verið og hversu æðislegt það hefði verið að vera öll saman þarna í allan þennan tíma. Jón skutlaði mér út á völl og þar með lauk þessari geggjuðu ferð. J & G, S & E og Kullinn, takk fyrir alles.

Jæja meira blaður seinna, farinn að ná í kaffi...