Jæja, maður verður víst að skrifa eitthvað hérna, búið að vera assssssgoti mikið að gera í vinnunni og utan hennar, afmæli, djömm og annað í þeim geiranum, og ekkert mun róast í þeim málunum næstu vikurnar, vinnu"djamm"ferð á hótel Rangá á morgun með tinz, afmæli og útgáfutónleikar á laugardaginn, næsta vika svo köben á fimmtudaginn og helgin eftir það árshátíð innnes.
Jón kallinn var á skerinu síðustu helgi og ákvað hann að við ætluðum að fara í "ÍKjólinnFyrirJólin" keppni - 5 kg af fyrir jólin, ágætis markmið, og er stefnan á að ná þessu, þrátt fyrir að það gæti orðið erfitt vegna mikilla freistinga allsstaðar en maður verður að gera eins og frakkinn segir.
Gifting Kristjáns er næstu helgi(22.október), ég ásamt fögru föruneyti íslenskra stelpna leggjum í hann á fimmtudaginn í næstu viku og stefnum á að skemmta okkur rooooooosalega mikið, þá meina ég roooooooosalega. Ég mun fá að taka stöðuna "The Best Man" fyrir Kristján, sem er mikill heiður og hlakka ég til giftingarinnar, sjá loksins einn af mínum nánustu vinum gifta sig, úff þetta verður klikkað. Svo er planið bara að mæla strikið fram og til baka, sé fram á að visa kortið fái að vinna fyrir verðgildi sínu í þessari ferð og má líka áætla að ég muni smakka 1 til 2 ískalda létthélaða réttfreyðandi Carlsberg.
Jæja meira röfl seinna, passið ykkur á hálkunni..