Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

þriðjudagur, desember 30, 2003

Nú árið er liðið í aldanna skaut...Gleðilega hátíð öllsömul, ég vona að steikin hafi runnið ljúft niður og allir komnir í áramótagírinn. Maður sjálfur át endalaust mikið í síðustu viku, djammaði slatta um helgina og svo núna eru áramótaplönin öll að myndast þannig að þetta er allt eins og það á að vera.

Og hvað fékk maður svo í jólagjöf, jújú, ég fékk eitt stykki cd organizer sem er svaka kúl tæki ef þú ert Monicatýpa, en þar sem ég er meiri svona sloppy joe þá held ég að þetta fari bara beint aftur í búðina, svo fékk maður auðvitað iso standar 2kg af sokkum, 1kg af bolum og nokkra dl af peysum. Eini harði pakkinn var þessi cd organizer 2000 Ultra og er það eiginlega hálf leiðinlegt því ég fíla harða pakka, en ég hef nefninlega séð hlutfallið á milli harða og mjúkra pakka breytast mjög svo rosalega síðustu ár. Þegar maður var minni þá fékk maður svona 8 harða á móti 1 mjúkum, en í dag er þetta alveg öfugt, sem er soldið skrítið þar sem í denn var hægt að láta mann í rósótta regnkápu og manni hefði verið sama en í dag...not so much. Ég held líka að það ætti að vera skráð einhversstaðar að karlmenn eigi að fá lágmark 3 harðapakka per gjafarsessijón, sem sé jól, afmæli og þessháttar...

En nóg af bulli í bili, ræðum þetta betur síðar...

fimmtudagur, desember 18, 2003

Jólasveinar, einn og átta...já krakkar mínir nú er tæp vika í jólin, tæp vika, eru þið að skilja það, ég hef aðeins gengið frá póstkortum og tekið smá til...ekkert annað, þetta er náttúrulega skandall sko. Ég held ég þurfi að leggja fram beðni til að fá jólunum seinkað, svona eins og um eina viku eða svo, bara svo ég geti nú gengið frá mínum hlutum fyrir hátíðina, það er nefninlega haugur eftir. Hvert get ég farið og lagt svoleiðis beðni fram, er það kirkjumálaráðuneytið sem getur pausað jólin, það hlýtur að vera, þeir eiga að vera beintengdir í kallinn uppi..."jó dúd, binni man þarf extra viku...er þaggi í lagi dúd?"..."nó prob" svarar hann og volla jólunum hefur verið seinkað um viku. Ef ég væri einræðisherra að þá væri ég sjálfur í djúpum skít þar sem það væri lög að öll kort yrðu að vera farin 2 vikum fyrir jól, en svona er þetta, rétt náði að klára þau í gærkvöldi klukkan 11:23 á grænlenskum tíma. Önnur lög sem væru í mínu einræðisríki væri að allir jóla-prejackulators(þeir sem keyra jólin allt of snemma) yrðu sektaðir og látnir hlusta á best of Helgu Möllers xmas songs fram í febrúar, þar inní myndu allir búðaeigendur landsins fara...hyski. En það þýðir ekki að hugsa um það, heldur horfa áfram á allt stressið sem er í vændum, velja gjafir, pakka inn gjöfum, fatta að límbandið er búið, brenna skyrtuna sína, sjá það er lykkjufall á öllum sokk...ehh hmmpf ég meina sjá að allur budweiserinn er búinn og þú þarft að sitja í gegnum jólagleðina edrú...hmmpff...já það var það sem ég átti við. Allaveganna ég er farinn að fá jólastressið í mig....farinn á barinn....

föstudagur, desember 12, 2003

Reyndar gleymdi ég að segja áðan, eini bjarti punkturinn í vikunni sem lét mig ekki ganga út í sjó í blýskóm er að ég er núna officially eigandi af eitt stykki tónleikamiða á METALLICA BABY..jeeeee. Þann 26.maí verð ég ásamt gengi í Köben með Calsberg í hönd á METALLICA tónleikum JEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEE...

Það mun verða tær gargandi veinandi blístrandi snilld...

Viku seinna...fátt búið að gerast nema mikil vinna, mikið stress og lítill svefn...þannig að mr happy er hérna kominn til að kæta heiminn, já ég geisla af gleði og ástriðu gagnvart því sem ég hef verið að gera síðan síðast, alveg eitt stórt feitt lint hipp hipp húrra fyrir því. Um daginn þegar ég var fullur og eitthvað að kveinka mér yfir vinnu minni við eina manneskju þá sagði sú manneskja mjög svo rétt orð, "Ef þú ert óánægður þá bara hættirðu.." já þetta er svo sannalega satt og hef ég séð menn gera þetta, bara óánægðir og þeir bara hætta, en það er svolítið erfitt í dag að bara hætta í vinnu og ætlast bara til að finna einhverja aðra vinnu, sér í lagi þegar maður er hálf grænn BS (nei stendur ekki fyrir BullShit) tölvunarfræðingur. Það fyndna í þessu kommenti frá þessari manneskju er að hún hefur ekki unnið úti í svona 15 ár eða svo og því mjög einfalt fyrir hana að segja "hættu bara og fyndu þér eitthvað annað og hættu svo að kvarta þaddna auminginn þinn" eða hún sagði þetta svona næstum því. Þetta reyndar virkaði smá í plús á mig, plúsinn er það að nú loksins eftir mikið væl að þá er maður svona aðeins að átta sig betur á því hvert ég á að stefna, og ef maður veit svona uþb í hvaða átt markið er, þá er alltaf hægt að setja svona waypoints á leiðina til að finna út hvaða leið sé best, djösins líkingarsnillingur er ég..

En allaveganna, þessi vika er búin að vera frekar súr, síðasta helgi var fín, með bjór og fíneríi á laugardeginum og sunnudagurinn fór í vinnu og leti, en þessi helgi framundan mun fara gagngert í það að klára skilduverk jólanna, gjafir, kort og undanrúmimokstur here I come...

föstudagur, desember 05, 2003

Jeij, föstudaginn er kominn en samt er allt á öðru hundraðinu hérna í vinnu og þar af leiðandi hefur mér ekki tekist að blogga neitt síðustu daga, alveg skelfilegt. En helgin er komin og því er ekki hægt annað en að gleðjast, þessi helgi eins og þær fyrri verða skemmtilegar, í kvöld verður væg bjórdrykkja og sjónvarpsgláp en á morgun verður barasta skellt sér í fína dressið, jafnvel greitt sér og rakað og farið á jólahlaðborð, það getur ekki verið annað en gaman, allaveganna í það minnsta góður matur.

Jóntz, þú ert að missa af feitu bjór/videó/bjór/pizzu/bjór kvöldi í kvöld, bara að láta þig vita...

overandout..

þriðjudagur, desember 02, 2003

Þriðjudagur til þrætu ættti þessi dagur að heita, eins ljúfur og skemmtilegur dagurinn í gær var þá er þessi leiðinlegur. Má segja að 80% þeirra sem ég vinn með hafa ákveðið að í dag, já í dag skulum við láta litla tölvukallinum líða illa, já gerum það, böggum hann eins mikið og hægt er, spyrjum hann um allt og ekkert, bara svo að hann geti ekkert unnið, alveg súr fyrrihelmingur af degi, og í hléinu var borið á borð þurrar, ilvolgar fiskibollur með sósu sem minnir einna helst á tekk olíu ásamt viku gömlu grasi...alveg jummmíí...meira seinna

mánudagur, desember 01, 2003

Jæja nú er minnz sko glaður í dag, og var reyndar glaður í gær líka, en allaveganna, hann Villi bró kann sko að sjá til þess að hafa mann góðan, haldið ekki að kallinn hafi barasta ekki skírt litla krílið sitt á laugardaginn Brynju, já gott fólk ef þið viljið komast "on my good side" þá gjörið svo vel að skíra frumburði ykkar í höfuð mér takk fyrir, reyndar var þetta hans annað en who´s counting. Þetta er alveg sééérstaklega fallegt nafn Brynja María Vilhjálmsdóttir...sameinar tvennt gott í þessum heimi, mig og BMV(V) ;-)

Annars var helgin nokkuð fín, Thanksgiving hátíðin stóð undir sínu, það var borðað þar til að bumban var farin að hreyfa sig eins og skriðjökul yfir buxnastrenginn, laugardagurinn var ekkert betri í þeim málunum, maður var eins og síkátur sólheimabúi með kökudisk í hönd í skírnarpartíinu og svo um kvöldið var fín samblanda af pizzuáti og sælgætisáti þar til menn lognuðust út af í sófanum mínum. Þannig að overall þá getur maður ekki annað en brosað út í annað eftir brilliant chill/át helgi..