föstudagur, ágúst 15, 2003
Kominn með shout out á síðuna, á eftir að fá mér betra message kerfi, þetta verður að duga yfir helgi.....overandout
Vefsíða dagsins er Andríki, schnilldar síða.
fimmtudagur, ágúst 14, 2003
Útrunnin vara!
Hvenær er maður orðinn útrunnin vara?, er spurning dagsins. Fjórum sinnum núna á ekki svo löngum tíma hafa manneskjur skellt því á borð í miðjum samræðum að ég sé alveg að falla á tíma, að verða útrunnin vara. Þá spyr ég á móti, hvenær veit maður að maður sé að verða útrunnin vara, er einhver leyndur stimpill á manni sem maður sér ekki en allir aðrir sjá úr fjarska, er það einhver ákveðinn tími frá síðsta sambandi sem skilgreinir þennan stimpil? Ég er ekki beint alveg viss en væri alveg til í að fá nánari skilgreiningu á þessu því fyrir mér þá þarf ég að láta svona eins 10 aðila hér í vinnunni vita að þeir eru löngu útrunnir, eiga eiginlega heima barasta í Sorpu og skulu því bara hætta að klæða sig snyrtilega, hætta vera hressir og kátir og bara dr...a sér heim og læsa hurðinni og henda lyklinum, því þeir eru útrunnir að líkama og sál. Ég reyndar held að fólk miði við 30 ára aldurinn, að ef þú ert ekki giftur, trúlofaður, með barn á leiðinni eða átt þegar tvíbura að þá ertu glatað keis því þú fylgir ekki því trendi sem tíðkast í heiminum í dag. Maður á að verða orðinn fjölskyldumanneskja fyrir 30 ára og helst kominn á jeppa með húsvagn, í bráðri leit eftir 120 fm íbúð í grafarvoginum því það er svo stutt í allt fjölskylduvænt, leikskóla, búðir og blaaaaaahhhhhh!!. Vera að plana fjölskylduferðir í tívolíið í köben með fjölskyldunni á næsta ári og farinn að safna í skólasjóði fyrir börnin. Þessi pressa held ég að fari illa í margan manninn, fólk kemur á 25 ára aldurinn og þá bara búmm, hvað á ég að gera nú, lífið búið, enginn vill mig lengur, ég GAMALL!! Þá er bara stokkið á næstu lausa manneskju sem jú ekki of fráhrindandi, þokkalega hress, eigið jú það sameiginlegt að vera bæði uppistandandi og bara sætt sig við það að maður eigi ekkert betra skilið. Þetta finnst mér ég ská oft hjá ýmsu kunningjafólki, búin að finna einhvern sem er ásættanlegur til þess að eyða restinni af ævinni með, en samt ekkert svona meir en það. Hvort er réttara að lifa þannig eða þá vera kominn á 25+ aldursárið og vera bara pollrólegur í þessum málum, ekki flýta sér í einni stærstu ákvörðun lífs síns? Svar óskast!
Farinn að strekkja mig!

miðvikudagur, ágúst 13, 2003
Svona í tilefni þess að það er miðvikudagur og að sólin skín í heiði þá er um að gera að koma með nokkra góða linka, ég afsaka, tengla er rétta orðið...koma með nokkra tengla. Það er fátt sem lætur mig hlæja meira en sögur um heimska krimma, hér er ein slík, lætur mann brosa út í aðra, sem og nokkrir brandarar sem liggja á þessari síðu...enjoy!
Vissu þið að við erum í 3.sæti á heimslistanum hvað varðar fjölda bíóa per capita, eða á íslensku per íbúa en í 2.sæti hvað varðar internet hýsingu og svo auðvitað í 1.sæti þegar kemur að gsm símum. Bara svona smá fróðleikur til að byrja bloggdaginn...Kaffitími!
mánudagur, ágúst 11, 2003
Jæja nú er helgi letinnar liðin og maður sestur aftur fyrir framan the mumbling machine. Helgin leið alveg óskaplega hratt þar sem hún var uppfull af mínum helstu áhugamálum, og eins og allir vita að "time flies when you´re having fun", en helgin fór í svefn, bjórdrykkju, át og pottalegu, sem er mín hugmynd að himnaríki. Minnz fór út á land til þess að kynnast þessari marg rómuðu sveitastemmningu sem allar innlendar ferðaþjónustur tala svo títt um, fyrsta stoppið var í Borganesi, sem er eiginlega bara svona framlenging af Reykjavík með aðeins skrítnara fólki og tíminn virðist ganga örlítið hægar. Oft þegar maður kem á þessa staði þá reyni maður að skima í kringum sig og sjá hvort maður geti áttað sig á hvað er það sem heldur fólki á svona smápleisum, Borganes greinilega lifir á þjóðveginum, túristar og bústaðarpakk flæðir þarna í gegn og spreðar í allt milli himins og jarðar, en þegar minnz var kominn upp à Búðardal var mér alveg ómögulegt að greina það hvað væri það sem héldi fólki á svona stað, tíminn stendur í stað, eitt mjólkurbú, 300 fm hárgreiðslustofa, 10 fm sjoppa, smá trillubryggja og that´s it...hver er tilgangurinn með svona pleisi, þetta er ekki við þjóðveginn beint, það er engin brjáluð bústaðarbyggð þarna í kring og eina ástæðan fyrir að maður veit að Búðardalur er til er vegna lagsins..."Er ég kem heim í Búðardal, bíður mín brúðin þar..." .
Allaveganna þessi rómaða íslenska sveitamenning er til, hún er bara kannski aðeins öðruvísi en maður bjóst við, en ég mæli með svona kynnum við sveitaalmúgan, þetta lætur mann virkilega fá það beint í æð hversu ljúft maður hefur það hér í bænum, með allt til alls, geta notið þess að sitja heima fyrir framan sjónvarpið og flakkað á milli sinna 20 sjónvarpsstöðva, geta valið um skyndibitastaði eftir því hver gefur mestu kokteilsósuna og verið með þau forréttindi að geta hlustað á 15 mismunandi útvarpsstöðvar, geta labbað niður à bæ og ekki þekkt eina sálu og geta stólað á það að pylsurnar í pottinum á aktu taktu séu ekki meira en 7 daga gamlar.
Bloggsíða vikunnar er Hnakkus
Minnz farinn!

fimmtudagur, ágúst 07, 2003
Fimmtudagar eru frábærir dagar, næstsíðasti dagurinn fyrir helgi, helgarspenningurinn aðeins farinn að myndast, drög að helgaraktivitíum hafa verið lögð fram og ástæður fyrir að geta hætt svona um klukkutíma fyrr á morgun eru í vinnslu. Gsminn er á fullu, hver er að fara að gera hvað um helgina, hvert á að fara, hvert er dresskód helgarinnar, er veðurspáin góð, á maður að skella sér í tjaldferð, hver er drykkur helgarinnar?. Þetta eru allt mjög svo veigamiklar spurningar sem verður að fá svör fyrir ei seinna en á morgun, gæði helgarinnar eru alfarið háð þessum faktorum og reyndar fleirum, eins og hvaða rakspíra á að nota um helgina, hvað á að fá sérr í þy...mat eftir djammið, hvaða laug er "in" þessa helgina ofl ofl...sem sé dagurinn í dag mun fara 43% í vinnu og 57% í helgarplanskipulagningu.
Afslöppun dagsins: Hér er fullt af Áhugaverðu og oft fyndnu video glensi.
Græjusíða dagsins eða vikunnar: Gizmo
Farinn!

þriðjudagur, ágúst 05, 2003
Ég vill þakka þeim sem að ég hitti þessa helgina fyrir fínustu helgi, fös brill, lau chill, sun en meira chill. En nú þegar þessi stuð helgi er búin, þá situr maður eiginlega eftir, hálf eirðarlaus og ekki beint tilbúinn til þess að setjast fyrir framan mumbling machine í vinnunni og byrja að vezenast fyrir vezenispakkið í vinnunni. Ég allaveganna væri alveg til í að fá bara einn enn frídag, svona til þess að jafna mig á öllum hinum frídögunum sem ég var að klára og undirbúa mig fyrir átök vikunnar í vinnunni. "Bara einn enn dag", fyrir mig er þetta alltaf svona á hverjum "mánudegi" , og eiginlega verra eftir svona langar helgar, þá hefur maður kynnst hinum ljúfa heimi utan vinnunnar og maður næstum því spyr sig afhverju maður gerist bara ekki "listamaður" eða heimspekingur og þar af leiðandi er manni borgað fyrir að flakka á milli sundstaðanna þegar góða veðrið er og horfa á friends þegar rigning er. Í staðinn eyðir maður 9 - 10 klukkutímum á dag fyrir framan mumbling machine að gera hluti sem maður er ekkert allt of viss um að séu það gagnlegir. En svona er þetta....kaffitími!
föstudagur, ágúst 01, 2003
T- 3 klukkutímar í verzlunarmannahelgina...
Svitapollar á feik birkiborðinu, rassasvitaför dauðans í stólnum og svitastraumarnir boga niður andlitið á mér...hvaða snillingar föttuðu upp á að hafa glerþak í skrifstofubyggingu??, líklegast þeir sömu og fundu upp á herbergjum sem hafa ekki opnanlega glugga, sem eru líklegast þeir sömu og fundu upp á fyrirtækissímum án tónvals. Það er ekkert grín að vera í þessari aðstöðu, sem áður fyrr þá er heilinn kominn á fullt í allskonar pælingum, en eiginlega allt pælingar tengdar þessari geggjuðu helgi sem er að renna í garð, og því hefur afkastageta mín núna droppað úr 94% sem var fyrir klukkan 12:30 í dag, niður í þetta thsjaaaaaa 13% eða þar um bil. Flestir af þeim sem hafa afsökun til að vera úti eru úti og við hin sem erum límd við þessa mumbling machine daginn út og inn komumst hvergi. Eina ljósið í skammdeginu er grínsíða dagsins sem gefur manni bros út í aðra og leyfir manni að tóra þessa 3 aldir sem eftir eru þar til að helgi helganna byrjar.
Krúsjal hlutir fyrir góða helgi: Durex öryggishlífar, upptakari, extra tyggjó, regnstakkur, kveikjari, veigar og sammarar eru krúsjal hlutir fyrir helgina, öllu öðru má redda á staðnum.
Farinn að vinda táfýlusvitann úr sokkunum...