Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

föstudagur, maí 05, 2006

Gleðilegt sumar, gleðilegan 1.maí, gleðilegan föstudag....
Í dag er haugur af tími síðan ég skrifaði eitthvað hér síðast og eiginlega veit ég ekki lengur hvort einhver er að kíkja yfir þetta bull nema hún Tinna mín, sem er svo yndisleg að nenna að vera svona ótrúlega dugleg að bögga mig um bloggskrif á svona 2 vikna fresti. Svo það var mér fyrir bestu að skrifa eitthvað hér annars munu fá falleg orð fljúga til mín yfir netið síðar í dag. Einstaka póstur getur því reddað mörgu.
En svona aðrir sálmar, ég hef verið ágætlega aktívur, fór upp á langjökul á sumardaginn fyrsta, eyddi deginum þar í biluðum jeppa, páskarnir flugu hratt, fóru í át og át með átpásum á milli, síðasta helgi fór svo í snilldar veislu á sveitaóðali Arndísar og þessi vika er bara búin að vera stutt og ljúf.
Svona þegar sumarið er nú komið þá finnur maður rosalega mikið fyrir einhverjum beljufiðring innst inni, svona jú eins og þegar beljunum er sleppt út á vorin, maður vill gera eitthvað, veit eiginlega ekki hvað eða hvernig eða hvar, en maður vill gera eitthvað, helst úti og helst eitthvað sem felur í sér fleiri til að gera eitthvað. Þessvegna vona ég að þið fáið ekki leið á mér þegar ég mun vera böggandi einhver ykkar um að gera eitthvað...jafnvel fyrir hádegi um helgar..úúúú.

Jæja svo svona til að minna okkur á hvernig helgin góða var ...þá er ein mynd sem flestir voru búnir að sjá...