Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

þriðjudagur, september 27, 2005

Helgin...helgin var fín, föstudagur, kósý kvöld með konunni sem endaði með sófahrotum fyrir skaup. 12 tíma bjórpakki með pakkinu á laugardeginum og svo bara mygli kósýheit á sunnudeginum. En það er komin ný vinnuvika og ég er búinn að fá að reyna snilli mína á nokkrum verkefnum, er reyndar akkúrat núna verkefnalaus en það er allt í keyinu, bara verið að lesa um x++ forritun á meðan.
Rétt rúmir 20 dagar í danaveldisferðina, get ekki beðið, verður rosalega gaman. Held að visa verði maxað í þesari ferð og lifrin misnotuð, úff hvað manni hlakkar til, afhverju er svona gaman að fara til útlanda, barasta get ekki beðið...

jæja nóg röfl...kaffitími

fimmtudagur, september 22, 2005

Það er margt sniðugt við nýju vinnuna, td er frítt gos, það er svolítið kúl, reyndar frá Agli Skalla, en allt í lagi, svo var ég að fatta að það eru allskonar týpur hérna innandyra, reyndar eins og í öllum fyrirtækjum, en allaveganna..hér eru nokkrar þeirra..
"Lifaði Töffarinn" - hann er um fertugt, hann reykir, farinn að safna Þ-i, hann er alltaf með 4 daga skeggrót, messí hár, linum snjáðum leðurjakka, krumpaðri skyrtu frá djammi gærkvöldsins, mætir alltaf lágmark 20 mín of seint, skýtur 5 aura bröndurum hægrivinstri, knows his way around the ladies...eða heldur það.
"Feiti djókerinn" - hann er með bumbu, hann á Man U bolla, hann talar bara í gríni, hann er alltaf í íþróttagalla, það er alltaf matarblettur á peysunni hans á ofarlegum belgnum, hann er fyndinn.
"Ofurnördinn" - hann er með gleraugu, hann er alltaf í skyrtu + peysu, hann á pennabox, hann getur krosslagt lappir, hann er 63 kg, hann hló þegar þú spurðir afhverju það mætti bara vera einn server manager per vél, hann er nörd.

Kem með fleiri týpur as we go...

miðvikudagur, september 21, 2005

Brilliant líf mar, sko ég veit ekki hvað það er, en eftir að ég er farinn að eyða meiri tíma hérna í nýju vinnunni þá hefur netskoðun mín hrapað um mörg þúsund prósentustig, msn/skype/lanchat notkun um marga klukkutíma á dag og almenn vellíðan aukist til muna. Þrátt fyrir að margir snillingarnir séu upp í Innnes þá úff hvað ég á miklu meira heima hérna en þar, umlukinn 17 nördum, hver öðrum meiri breiní og ascii brandararnir svífa í hrönnum um fyrirtækið, sem er gott.
Jón kallinn er á skerinu, við erum búnir að fara á fínt bústaðarflakk og í kvöld verður tekið sveitt njarðarsessjón heima hjá Gunna á meðan konan heldur eitthvað girliedót heima, get ekki beðið, jæja nenni ekki meiru, þarf að fara að configa aosinn minn..jeee

miðvikudagur, september 14, 2005

Jæja nú eru góðar fréttir, Jón ætlar að heiðra okkur hérna á skerinu með nærveru sinni núna næstu daganna, lendir á föstudaginn og verður í eina 10 daga, vonandi, reyndar ekki búinn að gaura miðann en maður gerir samt passlega ráð fyrir að flugleiðamafían reddi honum því. Þetta þýðir þá aðeins eitt, ég sem var kominn í áfengisbindindi verð eflaust að fresta því um einhverja daga þar sem ekki gengur eins og fólk veit að vera edrú þegar frakkinn er annarsvegar. Já maður verður að trekkja lifrina upp aftur, ná sér í tóbaksdós og endurnýja punktakortið hjá vínbúðinni. Svo í næstu viku held ég að stórsveitin Jeff Who? sé með sína fyrstu útgáfutónleika, en fyrsta plata þeirra ætti koma út á næstu dögum...sem þýðir bara enn meira djamm og rugl og svínarí fyrir mig...

Rock On!

þriðjudagur, september 13, 2005


Alveg magnað hversu mikill munur það er að vera að vinna á gamla og nýja staðnum, hér á gamla er ég eins og undin tuska og þarf 15 kaffibolla bara til þess eins að halda mér vakandi, en á hinum staðnum virkar vatnið bara mjög vel og maður er hyper allan tímann, frekar skrítið..eða kannski ekki. Reyndar verður skrítið að vera ekki nærri Tinnu allan daginn, maður er eiginlega orðinn vanur því, en þá verður maður bara að nýta sér tæknina og talast í gegnum skype eða eitthvað álíka.
Brúðkaup Stjána stuð og syngjandi Suzanne nálgast óðfluga og er held ég kominn tími til að bóka sér far út fyrir þá sem ætla út, ég held þetta verði alveg ógeðslega gaman, sér í lagi ef sumir næðu að koma með, jeeee.
En allaveganna hér er random mynd dagsins af rokkpoppgoði íslands...enjoy

mánudagur, september 12, 2005

Hér sit ég við nýja borðið mitt, með kaffibolla við hönd, nörda allt í kring og er sáttur. Er búinn að vera að reyna að setja upp vélina mína í allan dag, en einhvert snilldarnördið hefur tekið með sér flesta þá diska sem ég þarf og eflaust geymir þá undir koddanum sínum, því hef ég eytt tímanum mínum í dag í annarsskonar stúss, skoða og setja upp allskonar auka rusl. Tilvonandi fyrrverandi vinnuveitandi hefur náð að klúðra þessum mánuði hvað varðar mann í staðinn fyrir mig, þar af leiðandi mun ég eflaust þurfa að sinna þeim on the side, sem gæti verið allt í lagi ef maður fær mánaðarlaunin sín ofaná allt annað jee.
Jæja, en annars þá leið fyrsta djammlausa helgin ansi hratt, og hver dagur var nýttur til fulls, meira að segja menn voru vaknaðir fyrir 10 og læti.

Random mynd dagsins...

fimmtudagur, september 08, 2005

Djö er gott að hafa nýja tölvu við hönd. Ég byrjaði svona semi formlega í vikunni í nýju vinnunni, og hef verið aðallega að svara pósti og þessháttar þessa vikuna þar sem ég er enn fastur í þeirri gömlu. Ég er að vonast til að ná að byrja á fullu í næstu, eða allaveganna fara fá einhver krassandi verkefni, get gjörsamlega ekki beðið. En allaveganna fyrir nördin, þá er þetta nýja beibið mitt og í þennan sólarhring sem ég hef verið að vinna á hana þá er hún algjört bjútí.
Annað að frétta, já ég og Tinna þurftum að leyfa píparanum í vikunni að brjóta gat á nýflísalagaðann vegginn inn á baðherbergi þar sem ein lögnin fyrir handklæðaofninn hafði hrokkið á bakvið þennan millivegg, og nú er því komið stórt gat á annars nánast fullkomið baðherbergi :-( . Þvottavélin er farin að snúast, baðkarið fullt af vatni og nú vantar bara vask og innréttinguna í kring.
Annars hefur fátt nýtt gerst, allar líkur á að fyrsta rólega helgin sé í vændum í laaaangan tíma, þ.e.a.s. helgi án bæjarrölts, og eiginlega hlakka ég bara til þess. Sinna bara fjölskyldu og frú..

Jæja svo bara til að minna fólk aðeins á, þá erum við Tinz ásamt nokkrum öðrum að fara til köben í okt, fara um 20.okt og komið til baka kringum 24.okt. Kristján kallinn að fara að gifta sig og maður þarf nú að vera á staðnum til að sjá til þess að allt fari nú rétt fram. Þannig að ég segi bara KÖÖÖBEN BABY!!

laugardagur, september 03, 2005

Hmm kannast einhverjir við einhverja hér? :-) Heyrst hefur að tónleikarnir með Jeff Who? í gær hafi verð brill, nú er bara að bíða eftir að diskurinn komi út bráðlega..jeee

föstudagur, september 02, 2005

Í kvöld kl 20:00 í Kaplakrikanum mun á stokkana stíga Jeff Who? og í kjölfar þeirra mun Franz Ferdinand halda uppi stuðinu fram á rauða nótt. Þeir sem hafa áhuga á góðri skemmtun og sjá fyrstu stórtónleika Jeff Who? fari á Midi.is og versli sér miða fyrir kvöldið.
Er þetta nýjast boybandið? Eru þetta stórstjörnur? Hverjir eru þessir ómóstæðilegu menn?

fimmtudagur, september 01, 2005

Þar sem Jón varð ógeðslega gamall í gær, þá meina ég sko ógeðslega gamall í gær þá ákvað ég að votta honum samúð mína með því að pósta daglega myndir frá gömlu dögunum þegar hann var ekki svona ógeðslega gamall....