Verzlunarmannahelgin að bresta á og 100asta bloggskriftin mín...
Já það dregur sko til stórra tíðinda á þessum blauta fyrsta degi verzlunarmannahelgarinnar, jú þannig er mál með vexti að karlinn er barasta búinn að blogga 100 pósta til og með þessum, það tel ég nú barasta heljarins afrek þar sem maður er ekki meiri penni en þetta. Í tilefni þessa verður snakk veisla haldin í kvöld upp í Borgarfirði og staupað í epla snafs með, þeir sem þekkja leiðina eru auðvitað velkomnir, þið hin verðið bara að betla snakk og snafs seinna meir af mér.
Helgin byrjar svo stundvíslega um kl 16:00 í dag með svefnpokapökkun og hamborgarakaupum og ætlar elítu gengið að bruna upp í Borgarfjörð í slot Ásgeirz Von Hraunkotz og halda það magnaða slumberpartís veislu alla helgina, með viðeigandi ps2 spilun, video glápi, grilleríi, pottarbrölti og jú kannski slöfrun á einum eða tveimur bjórum. Þið sem ég á ekki eftir að sjá þessa helgi vona ég að skemmtið ykkur blessunarlega vel og að sólin skíni í hjörtum ykkar nær og fjær, til sjávar eða sveita, í Þýskalandi eða Frakklandi...bla bla bla..bara passið ykkur og drepist ekki með neinum lúsablésum.
Have fun kiddós :-) ...