Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

mánudagur, febrúar 27, 2006

Bolludagur...bumbudagur...bumbultdagur...er í dag
Snilldar dagur, dagurinn til að troða nokkrum rjómamenguðum glassúrlöðrandi gerdeigsbollum í smettið á sér, svona aðeins í tilefni dagsins...er þaggi...þetta er ekki beint minn dagur, þar sem reyndar ég hef aldrei fílað svona bollur, alveg síðan ég var krakki, þá hefur mér ekki fundist mikið varið í svona rjómamengað loft sem fyllir belginn á manni og maður situr á dollunni allt kvöldið. Þar af leiðandi ákvað ég að sleppa þessu í dag, fá mér frekar bara gulrót þegar ég kem heim á eftir.
Annars er allt fínt að frétta, menn bara að jafna sig eftir enn eina ofáts helgina, þar sem vömbin fór á kostum. Ég og Tinz tókum nett til í íbúðinni á laugardag, reyndar hún meir en ég en það sést ekkert í dag, massadugleg að rústa henni aftur, tók okkur örugglega bara 2 tíma, held að við þurfum að fara á námskeið í að halda stöffi á sínum stað.
Jæja allaveganna fátt annað frétta, hvað með ykkur...

mánudagur, febrúar 20, 2006

Föstudagur...Bjór og Idol heima í góðra vina hópi..
Laugardagur...gaaaaargandi snilld í flesta staði, byrjað með afmæli upp í árbæ, svo sundpakksteiti á sörlanum, karíókí á ölveri og svo hressó til 6...ég vill bara þakka öllum fyrir að gera þetta kvöld að einu besta kvöldi EVER...hruuukalega gaman...allaveganna fátt annað að segja..og það eru komnar nokkrar myndir á síðuna...

Adios

fimmtudagur, febrúar 16, 2006


Mygluð vika..
Þessi vika er barasta búin að vera temmilega mylguð verð ég nú að segja, það hefur verið skítt veður, brjálað að gera í vinnu/námskeiðum og bara lítil stemming í manni til þess að gera eitt eða neitt. Frá og með kvöldinu í kvöld verður sko breyting á þessu, það verður skellt sér í bíó og látið vampíru eða tvær hræða úr mér líftóruna, svo á morgun verður gúff og gúmmilaði fyrir framan tellann að horfa á idolið (réttar sagt ég að sötra öl með tölvuna í kjöltunni og Tinz glued to da telly). Svo på lördag þá verður sko eitthvað skemmtilegt gert, afmælisteiti hjá vinum tinz (wowþenkjandi vinir tinz, bellz þú veist hvað það þýðir), það verður eflaust fínt, svo eru hinir sekkirnir með eitthvað vesturbæjarteiti, þannig að það verður nóg að gera og ég vonast til að sjá sem flesta...
Annars þá sit ég hérna bara í mínum þægilega skrifstofustól, með brenndan bossa(fór í ljós í gær) og hlustandi á SOD...jæja svo ein random mynd...

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Skemmtilega fólkið vinnur hjá ríkinu, borginni, bænum...ég velti þeirri spurningu upp í gærmorgun til Tinz um hvar allt skemmtilega fólkið væri, við gátum hvorugt svarað því, en svo í gær, um klukkan 2, þá barasta kom svarið eins og elding í hausinn, auðvitað er allt skemmtilega fólkið að vinna hjá ríkinu, borginni og allskonar svona skattgreiðendapeningasugufyrirtækjum...já auðvitað, meikar sens, við borgum þeirra laun á einn eða annan hátt með tví eða þrísköttun stjórnvalda og því hlýtur bara að vera gerð sú krafa að þetta sé einstaklega þjónustelskandi fólk. Ég fékk einmitt staðfestingu á þessu í gær þegar ég þurfti að fá nokkrar upplýsingar frá tollinum.
Fyrra símtal: Tollurinn góðan daginn..já góðan daginn, ég er að leita eftir upplýsingum varðandi bla bla...já augnarblik gef þér samband..Endurskoðun...já góðan daginn, ég er að leita eftir upplýsingum varðandi bla bla..já bíddu aðeins....2 mín...5 mín...8 mín...Haaaalló einhver á línunni..já ég er enn hér...bíddu aðeins...13 mín..16...halló ertu enn þarna...já ég er enn hérna, ég ætlaði bara að fá upplýsingar varðandi bla bla...nú já var það, alveg rétt, nei ég veit ekkert um það, þú verður að tala við sörígörí um það..geturðu gefið mér samband við sörígörí þá?..nei ég kann ekkert á það alltílagi bless...
Seinna símtal: Tollurinn góðan daginn, já góðan daginn, geturðu gefið mér samband við sörígörí...já augnarblik...SÖRÍGÖRÍ!!..já góðan daginn sörígörí, britz heiti ég og er að leita eftir upplýsingum varðandi bla bla..NÚ ÞETTA BLA BLA ER BARA VEGNA BLA BLA..DEGINUM LJÓSAR...já ég veit það en mig vantar nánari útskýringu afhverju bla bla er eins og bla bla..SKILDIR ÞÚ MIG EKKI, ER EITTHVAÐ AÐ, BLA BLA ER BARA VEGNA BLA BLA, VAR ÞAÐ EITTHVAÐ FLEIRA!!..afsakið en óþarfi að vera með dónaskap, ég er bara með litla fyrirspurn í viðbót...HVAÐ!!?..nei veistu ég held ég sleppi því..klikk...
Já maður verður að elska þetta æðislega fólk í þjónustustörfum hjá ríkinu sem fær sko daginn manns til að verða bjartari og fallegri í alla staði.

Random mynd dagsins er svo hér...

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Hafið þið einhverntímann upplifað svona "vandræðaleg" atvik á vinnustað? Til dæmis eins og um daginn þegar ég var að fara á toilettið (það eru svona tvö klósettherbergi hlið við hlið hérna sem þú kemst að með því að ganga í gegnum fataherbergið) og út úr hægra toiletherberginu kemur einn samstarfsmaðurinn (kvenmaður) og með líka þessi skemmtilegi kryddaði number 2 ilmur, og þarna sem við nánast rákumst á hvort annað sá hvað hún barasta byrjar að roðna og roðna og roðna og sagði eitt stutt "Hæ", horfði ekki í augun á mér heldur reyndi flóttalega að horfa á tærnar á sér og klaufalega tróð sér eiginlega framhjá mér. Þar sem hitt toilettið var upptekið varð ég að fara inn í spæsírúm, glugginn var galopinn og greinilegt búinn að vera það í dágóðan tíma því allt var orðið ískalt þarna. Ég með mín syndaralungu, gleypti eins mikið af "fersku" lofti frá glugganum og reyndi svo að pissa eins hratt og þvagblaðran mögulega leyfði því þrátt fyrir sunnan 8 vindstig þá var lyktin búin að finna sér samastað þarna við klósettskálina og óska engum manni að finna þessa lykt, ekki við minn súrasta þeytiskít hef ég fundið annan eins fnyk. Þegar ég var búinn að ljúka mér af og ná mér í kaffibolla þá rölti ég inn á skrifstofu aftur, og út í horni situr þessi samstarfsmaður minn, með headphones á og tónlist í botni og hreinlega drekkir sér í tölvuskjánum til þess að sleppa við að horfa á mig...greyið...

Jæja nóg röfl í bili...forrita...já og auðvitað ein mynd frá þegar tölvunarfræðingurinn og verkfræðingurinn voru að Tarkettleggja...

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Jæja núna er maður búinn að vera öflugur síðustu daga, versluðum okkur Tarkett í síðustu viku, byrjuðum að leggja það á laugardaginn með aðstoð séra Jóns, gekk svona líkast til vel og erum búin með stofuna og svefnherbergið eneldhúsið fær að bíða til laugardagsins. Myndir eru komnar á myndasíðuna fyrir þá sem nenna að skoða myndir af gólfi. En eins erfið síðasta vika var þá hefur þessi vika byrjað barasta nokkuð ljúflega, búið að vera svona temmilegt að gera í vinnunni, er að mjólka nokkra verkefnisspena til að fá meira flæði til mín þannig að ég sé fram á að eftir þessa viku mun maður drukkna aftur, sem er auðvitað ekkert nema gott.
Silvía Nótt er að taka þátt í Eurovision undankeppninni hérna heima, og það missti einhver óvart lagið hennar út á netið í gær, ég held að þetta sé eflaust besta lagið fyrir þessa keppni frá okkur hingað til...ég er nú ekki mikill Eurovision spekúlant en mér finnst þessi ofmálaðisilvíu karakter geta bara sungið helvíti vel...allaveganna þá hljómaði þetta ekki eins og þessi týpísku steingeldu eurovision lög
Jæja, farinn að þjóra kaffi....og auðvitað kemur hér mynd dagsins frá sólheimum...