Ríkur == leiðinlegur?
Afhverju er það að meiri hluti þeirra sem ég þekki og eru ríkir (sem eru ekki margir) þá meina ég RÍÍÍKIR, ekki bara svona þægilega vel stæðir, eru svona einstaklega leiðinlegt fólk. Ég þekki einn, hann er svo innilega gjörsamlega út úr kortinu leiðinlegur kallinn að gráum hárum fjölgar um 500 í hvert skipti sem hann nálgast. Þessi kall á allt, rosalegan bíl, fyrirtæki, svaka hús, eignir út um allt, haug af börnum og stórsjó af seðlum...en hann er barasta svona líkast til leiðinlegur, nonstop væl, endalaus paranoja og brosir einungis þegar honum hefur tekist að murka lífið úr einhverju smáfyrirtækinu. Svo er annar, ekki eins ríkur, slatta vel stæður samt, en hann heldur virkilega að hann sé the booomb, rolemodel fyrir alla og að allir og ömmur þeirra dýrki hann, en meeeen hvað hann er leiðinlegur og heimskur, oft á fundum finnst mér ég vera að horfa á stillimynd í slow motion þegar ég tala við hann, ekkert nema tóm augun starandi, með opinn kjaftinn og maður finnur að það er engin virkni í gráu drullunni hjá honum....og það eru sko fleiri...nenni ekki bara að tala um þá. Er þetta staðreynd að maður er bara meira happy á núllinu, á maður ekkert að vera að rembast þetta kannski? Sleppa bara þessu "verðaríkur" plani? Ég veit ekki, kannski er það ekki þess virði ef maður verður svona út úr kortinu leiðinlegur.
Jæja farinn að fá mér beikon til að hressa upp á daginn...