Nú er sumarið búið...
Jæja that´s it, nú er kominn tími til að fara að íhuga brottfluttning suður á bóginn. Sólin er farin að setjast milli 8 og 9, ég hef þurft að klæða mig í peysu á morgnanna og er farinn að safna skeggi fyrir komandi vetur. Það er svosem ekki hægt að kvarta yfir komandi vetri, verður nóg að gera og margt að upplifa, parís og munchen í októberbyrjun, það verður geggjuð upplifun og svo auðvitað núna ef ég ákveð að meika masternámið að þá verður maður á fullu í skóla með vinnu, og því ekki mikill tími til að láta sér leiðast eða verða þunglyndur á skammdeginu sem er að fara ausast yfir okkur. Vissu þið að það eru 3.5 mánuðir í jólin, hafið þið gert ykkur grein fyrir því, neeeihh ég hélt ekki, og meira að segja þá er ekkert svo mikið spes í þessi jól, vinnulega séð, þau detta á helgi og við vinnandi fólk fáum um 1 dag extra í frí, algjör skita.
En hvað er svo annars planað núna í haust og vetur. Nú fyrir mitt leyti, þá er ég að rembast við mastersnámspælingar(eiginlega byrjaður en samt ekki), og verð að ákveða mig í vikunni hvað það varðar, nú októberfestin frá 1 - 11 okt ásamt því að hitta jón og frú í parís. Annað hefur nú ekki verið planað, en vonandi poppar upp einhver góð bústaðarferð eða annað í þeim dúr áður en jólin detta yfir mann. Svo auðvitað um jólin, þá verður að plana eitthvað MEEEEEGAtjútt þar sem kritz mætir á skerið, jón og gunna verða eitthvað á skerinu og bara allir ligeglad og sáttir...ooohh hvað það verður gaman. Farinn að plana...hmmm...ættum við að fá 1 trúð eða 2?
Ég sast á skólabekkinn á mánudaginn, í tíma í netkerfum, erum svona 15 manns í bekknum, þar af 2 þjóðverjar, Gunther og Hanz. Nú prófessorinn er þessi gangandi tölva sem er með doktorsmasteroftheuniverse gráðu frá einhverjum sækósmartschoolinusa og hann gjörsamlega talaði tungum allan tímann. Ég horfði í kringum mig og sá mér til mikillar lukku að ég var ekki einn þarna gapandi og starandi á hann, reynandi að gefa þeim hljóðum sem komu út úr el proffessore einhverja merkingu. Nei það voru aðrir, við erum líklega 3 eða 4 í þessum bekk sem erum á sama leveli, sem sé miniture nörd lvl 1, hinir eru allir orðnir masteroftheuniverse nördar og vita sumir meira en prófessorinn um vissa hluti...en allaveganna ég þraukaði tímann og er núna að mana mig í næsta tíma, búinn að lesa fyrir tímann og allt...úff hvað það er erfitt að snúa aftur til náms eftir 2 ára hlé...úff.
Jæja farinn að lesa um byggingu tcp server/client...cya all