Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Fátt að frétta, 10 kaffibollar farnir í dag og netið mergsogið, en á því einmitt fann ég þetta hérna og það svona gjörsamlega lét mig hlæja til kl 16:00, en eftir það varð ég að vinna...öss.
Enn ein helgin framundan sem mun eflaust enda í drykkjarlátum, ekki vænlegt það, hættur að muna hvenær ég djammaði ekki um helgi, sem er ekki gott. En allaveganna status kví hér, skoðið linkinn og hlæjið.

Britz kveður

þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Jæja kallinn kominn til starfa aftur...gaman gaman *hóst* *hóst*
Og hvað gerði maður svo í fríinu, jú það var reynt að sinna vinunum aðeins, farið í bústaðarferðir, legið eins og skötur og þjórað smá veigar í góðum félagsskap. Þessar 2 vikur liðu allt of hratt og væri ég alveg til í að vera í eins og 3 í viðbót, en maður mun eflaust bara reyna að nota þetta frí seinna meir ef maður fer eitthvað út eða gerir annað gáfulegt.
Annars er maður núna bara að eyða þessum síðustu dögum hérna í vinnu til að stinga út úr fjárhúsunum og sjá til þess að eftirmaður minn komi að semi hreinu skíthúsinu. Get ekki beðið eftir að fá að fara í hina vinnuna, þetta er fyrsta skiptið í langan tíma sem mig virkilega hlakkar til að fara að vinna, get ekki beðið að læra nýja hluti og kynnast nýju fólki, verður vonandi skemmtileg reynsla.

Jæja já jamm...farinn

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Er í sumarfríi ligga ligga lái, kem aftur til vinnu á mánudag..bulla þá eitthvað, en þangað til....hafið það gott...

Blitz

fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Grein sem ég sá á www.mbl.is
----------
Lokað á íslenska áskrifendur að Sky-sjónvarpsstöðvum
Breska sjónvarpið SKY hefur ákveðið að loka á öll íslensk krítarkort sem notuð eru til að greiða áskrift að sjónvarpsstöðvum SKY, að SKY-News undanskilinni. Gerir SKY þetta að tilstuðlan Samtaka myndrétthafa á Íslandi (SMÁÍS), að því er segir í tilkynningu frá samtökunum í dag.
Ástæðuna fyrir þessari lokun segja SMÁÍS vera þá, að SKY hafi einungis sýningarrétt á Bretlandseyjum. Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS, segir að þetta eigi fyrst og fremst við stöðvar eins og SKY-One, -Movies og -Sport, en ekki SKY-News, sem sé allstaðar opin.
Í tilkynningunni frá SMÁÍS segir m.a.: „Undanfarið hefur borið talsvert á því að íslensk fyrirtæki eru að auglýsa áskriftir af SKY sjónvarpstöðvunum þar sem í boði eru sjónvarpsþættir, kvikmyndir og enski boltinn svo eitthvað sé nefnt. Það skal skýrt tekið fram að þessir aðilar hafa engar heimildir til þess að selja þessa þjónustu þó svo að sumir hverjir gefi sig út fyrir það. Ástæðan er einfaldlega sú að efnisréttindi af flestu því efni sem sýnt er á SKY hefur verið keypt af íslenskum fjölmiðlum fyrir íslenskan markað sem greiða fyrir það hátt verð til eiganda efnisins. SKY hefur keypt samskonar rétt en þeirra heimildir gilda þó einungis fyrir Bretland. Því er sala áskriftar af SKY sjónvarpsstöðvunum hér á landi án allra heimilda og brot á lögum um höfundarétt og útvarpslögum.“
Einnig kemur fram, að SMÁÍS útiloki ekki „frekari aðgerðir gegn þeim aðilum hér á landi sem bjóða áskriftir til sölu af SKY eða öðrum stöðvum sem ekki er leyfisveiting fyrir“.
----------

Eruði ekki að grínast, hvernig verður þetta bráðlega, verður skammtað ofaní okkur skv einhverjum SMÁÍS stöðlum hvað við horfum á eða hlustum á og hvenær við horfum/hlustum á það? Bara af því að hægt er að versla þessa þjónustu ódýrar annarsstaðar þá er bara lokað á hana, hverskonar kommúnistakompaní stýrir okkar fjölmiðlafrelsi? Svona afturkreistings stælar fá mig til að efast stundum hvort við lifum við lýðræði eða lútum einhverjum laumukommum sem þola enga samkeppni. Ég hlustaði stundum á erlendar útvarpsstöðvar í gegnum tölvuna, er það ekki brot líka, ég meina þar sem stundum ég nennti ekki að hlusta á stillimyndina (rúv) eða sama lagið 18 sinnum sama klukkutímann(allar aðrar ísl útvarpsstöðvar) og leitaði út fyrir landsteinana af afþreyingu er ég þá ekki brjóta SMÁÍSar lög? Verður þetta virkilega þannig að ég verði rukkaður fyrir að flauta eða raula mússík ef ég hef ekki verslað réttindi til að fara með lagið? Hvað með hin ýmsustu tímarit, sum þeirra hafa teiknimyndasögur sem birtast einnig í íslenskum blöðum, á ekki að banna þau líka..urr urr. Mér finnst þetta grátlegt að á okkar tímum þegar verslun á tónlist og dvd diskum hefur sjaldan verið meiri að einhverjir bældir nöldurseggir sem þola ekkert annað en einokun, ráði því við hverja maður verslar þjónustu frá...aumingjar..ekkert annað en aumingjar.

Einn pirraður farinn í kaffi..

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Ninja skrift, er það raunveruleg skrift?

Helgin leið hratt eins og allar aðrar helgar, Kristján og Suzanne mættu kampakát á föstudaginn á skeljó ásamt hinum hefðbundnu gestum, held að allir hafi barasta skemmt sér konunglega og var hlegið mikið og tölvan mín talsvert misnotuð fyrir frönsk trúnó. Laugardagurinn fór svo í 2 innfluttnings/afmælissamkundur(Huggzy-Eiður / Elín-Maggi), var kallinn bara spakur en stelpurnar ekki og tjúttuðu þær villt það kvöldið en bolla í boði hússins og sá hún til þess að sumir voru heldur framlágir daginn eftir.

Skrítið að hugsa til þess að Kristján og Jón munu ekki birtast aftur á skerinu fyrr en í fyrsta lagi um jólin, það er alveg eftir rúma 4 mánuði og á þeim tíma á jón eftir að flytja til USA og alles, mikið að gerast hjá þessu fólki. Eins gott að þessir menn haldi sér í skype sambandi fram að heimkomu.

Núna eru bara 3 dagar í sumarfríið, 2 vikur eiga það að vera í þetta skiptið og vona ég að ég nái betri nýtingu í fríið en síðast, af þeim 5 dögum sem ég tók þá, þá vann ég 1 og svaraði svona 5-8 símtölum á dag hina..ekki beint draumafríið. En það verður ljúft, stefnum á að taka tjaldið og keyra eitthvað, jafnvel fara upp í bústað einstaka nótt. Get ekki beðið.

Jæja búinn að baula innihaldslausu bulli í bili...kaffitími.

fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Úff ég get ekki beðið eftir næstu viku, þá kannski slökknar á þessari vestmannaeyjaverzlunarmannahelgarumræðu, eina sem ég heyri þessa daganna daginn út og inn er eyjar rokkuðu bla bla bla. Tinz slysaðist til eyja með sínu posse og síðan þær lentu á skerinu þá barasta svona autorepeat á 10 mín fresti "Eyjar rokkuðu". Ég fæ hroll í hvert skipti sem einhver upp í mötuneyti ælir eftirfarandi upp úr sér "Tinz hvernig var svo í eyjum.." Ok ég fór ekki til eyja, ok ég kannski sé svoldið eftir því, ok það var gaman í eyjum...en meeen, vonandi verður næsta helgi enn betri en eyjar og ég fái að vera memm. Héðan í frá fer Tinz og possíið ekkert án mín svo ég þurfi ekki að þjást aðra eins viku.

Farinn að skafa af mér eyrun...

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Jæja þá er maður búinn með 1 viku í fríi, eða svona tæpa 1 viku í fríi og kallinn er mættur aftur til vinnu. Fríið leið hratt, vorum slatta heppin með veður og utan við að vinnan hringdi svona 5 sinnum á dag þá nutum við þess til fulls að geta haft það súper næs. Verzlunarmannahelgin var líka að enda í gær og sótti ég Tinz og vini á flugvöllinn í gærkvöldi, þreyttar en hressar og nett myglaðar eftir heila helgi í eyjum. Ég sjálfur eyddi helginni í bæjardjömm og nördaskap. Næsta frí er eftir tæpar 2 vikur og svo eftir það barasta ný vinna, get ekki beðið.

Hafið þið hitt manneskju sem er svo innilega á annarri plánetu miðað við þig, manneskja sem þið hreinlega skiljið ekki hvað er að segja þó svo hún tali íslensku? Ég allaveganna veit um eina slíka sem vinnur hérna, oftar en ekki reyni ég að vera svona kammó og sendi fyndinn link eða spjalla við hana þegar ég á leið framhjá borðinu hennar. En í hvert sinn sem ég á í samskiptum við þessa manneskju þá eru viðbrögð hennar alltaf gjörsamlega út úr kú. Dæmi: Ég sendi fyndinn link af hundi sem kann ekki að gelta á fullt af fólki, 99% þeirra sem svara svara með "lol" eða einhverju álíka, en þessi manneskja svarar með "LÚÐI!". 1 klst seinna sendi ég aftur link á hóp manna innan veggja fyrirtækisins, þetta skipti er linkurinn af fyndnu greinasafni eftir einn íslenskan vitleysing. Enn og aftur svara 99% svarenda með "lol" eða einhverju álíka, þessi manneskja með "Þú ert búin að vera í fríi í viku hefuru EKKERT að gera !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!11 Annað en að bögga mig GAUR!!!! ". Nú veit ég ekki alveg hvort þetta er hennar leið til þess að segja "nei hæ en gaman að fá link..etc" eða hreinlega að ég hafi óvart kúkað í skóinn hennar einhverntímann í fyrra lífi...hafið þið upplifað svona hegðun?

Farinn að gaura gaur