Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Var í vinnuferð um síðustu helgi, helvíti gaman, var tekinn heill dagur í vinnuferðina, allan laugardaginn, frá fyrir 8 um morguninn til rúmlega 2 um nóttina. Það var fundað í góða 7 tíma, farið á fjórhjól í góða 2 tíma, borðað roooosalega góðan mat og skellt sér í pottinn og djúsað aðeins smá. Annars er barasta allt fínt að frétta, nóg að gera og allir hressir.....djö er þetta leim blogg, en allaveganna...gleðilega páska alle sammen...

Ein mynd frá vinnuferðinni...upp á fjalli í góðum gír eftir að hafa verið að torfærast upp hlíðarnar á því....

föstudagur, apríl 07, 2006

Jæja nú er þessi vika búin og því innan við vika í páska, get ekki beðið, virðist að páskarnir munu enda í 5 daga átveislu, eins gott að maður byrjaði í vikunni að hreyfa sig :) undirbúa skrokkinn fyrir þau áttök sem hann á í vændum...sér í lagi auka styrk magavöðva og þol rassvöðva því það verður sko setið fyrir framan tv og étið út í eitt...

Jæja nóg röfl...góða helgi alle sammen..

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Steggjun, árshátíð og svo páskar....
Sorry að maður hefur ekki verið að sinna þessu, það hefur bara haugur verið að gera síðustu misserin, ein helgin fór í að steggja Kritz og stúss í kringum það, hepnaðist svaðalega vel og var ógeðslega gaman, svo núna síðustu helgi var árshátíð í vinnunni, suddarlega gaman líka, mikil stemming í liðinu og gítarar á flugi og veigar flæddu um allt....kannski maður setji inn mynd eða tvær í vikunni. Svo eru bara páskarnir á næsta leiti, eiginlega skandall að maður hefur ekki nein plön þetta árið, sem mér finnst svolítið leiðinlegt, síðustu 25 árin hafa eiginlega alltaf verið einhver plön með páskana, en í ár, nei ekki mikið, ætli þetta endi ekki bara í alsherjar nautnareldamennsku og sófalegu á skeljanum, gæti trúað því. Eru þið komin með einhver plön? Væri nú gaman að einhverjir myndu kannski gera eitthvað með einhverju þessa páskana. Spilakvöld með kók og prins? Grill? Túnfisksalatísigtroðsla? Allaveganna látið mann kannski heyra eitthvað ef eitthvað er í gangi eða langanir í að gera eitthvað....

Passið ykkur á snjónum...