Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

fimmtudagur, júní 08, 2006

Tapað fundið...
Tapast hefur 1 stk sumar, sást síðast í ágúst í fyrra, en þá bara í örstuttan tíma, þetta sumar er sólskinsríkt, hlýtt og þurrt og svarar við kallinu "Sólsólskínámig". Þeir sem upplýsingar hafa um ferðir þessa sumars, vinsamlegast látið veðurstofu íslands vita hið snarasta.
Fundist hefur 1 stk bloggari sem gleymt hefur blogginu sínu í dágóðan tíma, aðstandendur eru vinsamlegast beðnir afsökunar og verður eitthvað úr þessu bætt á næstunni.
Grillveislur, sundferðir, tjaldferðir, bústaðarferðir, ykkar tími er kominn, nú er bara að fara að láta á ykkur kræla svo séns sé á að sumarið sjái til ykkar og komi.