17.dagar til jóla, 7 dagar þar til Kristján, Suzanne og Jón koma, um 14 dagar þar til Fannsa mætir, 8 dagar í kökur og kleinu teitið á Skeljagrandanum, 24 dagar í áramótin, 3 dagar í jólagleðina hér í vinnunni...sem sé overall, alveg hellingur fyrir stafni. Helgin sem leið var brilliant, með brilliant teiti heima hjá Gullu, er með nokkur video frá því sem verða sýnd velvöldum einstaklingum við tækifæri. Jæja farinn að vinna..
miðvikudagur, desember 07, 2005
fimmtudagur, desember 01, 2005
Jeee
Enn einn mánuðurinn sem að gekk súperdúper í vinnunni, þar af leiðandi hef ég ekkert unnið eftir hádegið í dag, ekki beint vegna þess ég nenni því ekki heldur frekar vegna þess að the boss bauð öllu pakkinu út á éta í hádeginu og var troðið í sig börger og bjór og situr maður hér núna, með belginn út í loftið, Rammstein í hausfóninum og stynur af seddu. Held við þurfum að fara að gera eitthvað lélegt í næsta mánuði svo við þurfum ekki að belgja okkur út af svona gúmmilaði. En sem sé þá 3 mánuði sem ég hef unnið hérna, þá hefur fyrirtækið náð öllum markmiðum og ríflega það, reyndar með alveg viðurstyggilegri vinnu og hlakkar manni til þegar framlegð manns verður betri og þá fara hlutirnir nú fyrst að gerast.
Annars er barasta allt í góðum gír, vinna, jólaundirbúningur,heimavinna (bora og stöff),afmæli á laugardaginn, bíó á morgun, nördaskapur í kvöld..þetta er barasta allt eins og það á að vera...