Flabbo's mumbling machine

Dobry do ostaniej kropli!

mánudagur, nóvember 28, 2005

Hey alle,
Helgin liðin, enn á ný, alveg skelfilegt, sit hér núna að forrita, þarf að skila af mér fyrsta alvöru verkefninu á morgun, verður spennó að fara og kynna það á fundi í KB banka á morgun...jeee. Annars þá var helgin mjög ljúf, föstudagurinn var í leti, gærdagurinn í meiri leti og afslöppun og rauðvíni og svo dagurinn í dag smá framkvæmdir.
Fyrsti í aðventu er í svo í dag, eða akkúrat núna í gær, og ekkert smá sem hverfið virðist lifna við, þá meina ég það verður allt svo miklu bjartara og skemmtilegt þegar fólk er búið að skreyta hjá sér, ég stefni á að setja einhverjar seríur upp í vikunni, þurfum bara að athuga hvað Tinna á mikið af dóti til að gaura. Annars verður bara farið í rúmfó.
Annars bara þá pikka ég meira á morgun....bones notches..

föstudagur, nóvember 25, 2005

Smá föstudagsgrín...HÉR

fimmtudagur, nóvember 24, 2005


Afmæli, ammili, amli...
Rokkstjarna íslands, ásgeir valur flosason, aka ace átti afmæli í vikunni, vegna aulahátts og tækniörðugleika þá náðist ekki í kappann á tilteknum degi, þar með segi ég barasta hér og nú..TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KJAAALLLINN!!


miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Jólahvaaaað...
Ojjjjj segi ég nú bara, ég gerði þau mistök í gær að vera að kveikja á útvarpinu hérna í vinnunni, og fyrir slysni þá næ ég að ræsa upp létt 96.7, og voru þá barasta bullandi jólatónar í gangi, ojjj barasta segi ég, svo var verslað í Hagkaup um helgina(já mar ég veit, maður er kóngur) og þá voru þeir farnir að spila einhverja "let it snow" diska, reyndar mjööög lágt en enga síður nógu hátt til að mitt ofurnæma eyra gæti ælt. Ekki halda að ég sé ekki jólabarn, ég er það for sjooor, ég elska smákökur og jólaljós og jólatré og jólasveinasögur og kósý kvöld með vinum að spila með kakóbolla á meðan snjóflyksurnar hrannast niður, ég fíla allt svona, en þegar maður á að vera kominn í jólagírinn í októberlok skv útvarpi og verslunum...það finnst mér bara rangt, eiginlega ógeðslegt, það er bara viss mikið hvað maður getur þolað af þessari jólatónlist, Bing Crosby til að mynda er bara þolanlegur í max 3 vikur á ári. En þar sem maður er farinn að röfla um þetta þá langaði mig að spyrja..vissu þið að það eru aðeins 4 helgar fram að jólum? Aðeins 4 helgar, þetta finnst mér vera alveg svakalega lítið, sérstaklega þar sem ég veit td að næsta helgi fer í íbúðarstúss að einhverju leiti, helgin 10.des fer í jólagleði hér í vinnunni og því tengt og því í raun eru bara 2 helgar sem eru "lausar". Já ég veit það er bara nóvember ennþá, en þar sem allar verslanir eru komnar með bullandi jólahjólaógleði í gang þá getur maður ekki annað en farið aðeins að skoða hvað maður á eftir að gera og hjá mér er það slatti. Planið er að vera búin að gera ákveðna hluti í íbúðinni, svo er auðvitað allar þessar blessuðu jólagjafir, jólakort, ætti maður að vera myndalegur í ár og reyna að gera eitthvað svoleiðis..ærónó. Reyndar er planið í ár að reyna að vera búinn að öllu í tíma (í fyrsta skipti ever) og geta bara verið latur þegar að hátíðinni kemur. Reyndar má varla kalla þetta jólafrí sem maður fær, skv calander þá fær maður 26.des frí og svo bara ekkert meir, reyndar geta höfðingjar eins og ég eflaust bara unnið heima þarna á milli jóla og nýárs og því verið heima í boxerunum í viku...algjör draumur.
Jæja nóg bull, farinn að program like the wind..

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

General wondering...
Hvenær er maður orðinn fullorðinn?
Er það þegar maður er orðinn 30 ára?
Er það þegar maður fylgist með fréttum oftar en 1 sinni á dag?
Er það þegar maður er byrjaður að fíla sig best heima hjá sér en ekki á glansbörum bæjarins?
Er það þegar maður er búinn að fjárfesta í nefháraklippum?
Er það þegar maður er kominn með fleiri en 3 grá hár?
Er það þegar maður er farinn að hugsa um hvar maður vill eiga íbúð í raðhúsi?
Er það þegar maður er farinn að vita nöfnin á ráðherrum okkar?
Er það þegar brandarar sagðir af stjórnmálamönnum eru fyndnir?
Er það þegar maður man enn eftir því þegar ekkert sjónvarp var á fimmtudögum?

Nei ég var bara svona að spá, ég hef nefninlega núna í 27 ár verið að bíða eftir því að verða fullorðinn og enn hef ég ekki fundið fyrir svona BÚMM HALELÚJA ÞÚ ERT ORÐINN FULLORÐINN fíling ennþá...en er alltaf að bíða...hversu mörg ykkar fíla sig sem orðin fullorðin?

mánudagur, nóvember 21, 2005

Tíminn flýgur....
Jæja loksins er maður farinn að röfla aftur, hef reyndar ekki litið á bloggið mitt ennþá og lesið nein komment en mér skilst þau séu ansi skrautleg. En allaveganna, afhverju hef ég ekkert skrifað í ár og öld, jú þannig er mál með vexti að ég er búinn að vera svo eitthvað mikið út um allt og vinna og ...bara gera stöff að ég hef gleymt þessari síðu í núna hátt í mánuð. Í dag er rétt rúmur mánuður í jólin, rétt rúmur mánuður, sjeit, finnst eins og það hafi nú bara verið í gær þar sem ég var viðstaddur giftinguna þeirra Kristjáns og Suzanne, kannski svona eins og vika síðan við grilluðum síðast...en það var í raun í september...sjeit hvað þetta líður. Einhverjar fréttir, jú Jón verður á skerinu meira eða minna alveg fram yfir áramótin, sem er kúl, ekki kúl fyrir lifrina mína en að öðru leiti múltíkúl. Það eru 4 lausar helgar fram að jólum, hafið þitt fattað það? Reyndar er ein þeirra hálfupptekin þar sem jóladinnerinn í vinnunni er 10.des, sem er laugardagur, þannig að fyrir mig eru bara 3 helgar fram að jólum...sjeit enn og aftur.
En allaveganna ég ætla að rembast við að skrifa eins og 3 - 5 orð reglulega fram að jólum, í von um að einhver nenni að lesa þetta....